4. janúar 2005
Sjaldgæfir fuglar í Stykkishólmi
Tvær fremur sjaldséðar fuglategundir, haftyrðill ( Alle alle ) og gráþröstur ( Turdus pilaris ), sáust í Stykkishólmi fyrir og um hátíðirnar. Högni Högnason fann aðframkominn haftyrðil í innkeyrslunni hjá sér við Silfurgötu þann 18. desember en fuglinn drapst undir mannahöndum skömmu síðar. Gráþrösturinn var hins vegar lifandi síðast þegar fréttist en Ann Linda Denner tilkynnti að hann hefði sést í garðinum hennar við Ásklif fyrir og um jólin.
![]() |
![]() |
|---|
Náttúrustofa Vesturlands tekur við upplýsingum um sjaldgæfa og aðra fugla á Vesturlandi. Þá er minnt á að Vetrarfuglatalningin á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands ( http://www.ni.is/vetrarfugl ) fer fram sunnudaginn 9. janúar.