1. febrúar 2006

Gæfur smyrill

Náttúrustofunni barst í dag tilkynning frá starfsfólki verslunar Skipavíkur í Stykkishólmi um að óvenjulega gæfur smyrill sæti þar á bílhúddi og hrærði sig hvergi. Ljósmyndari Náttúrustofunnar vatt sér á staðinn og náði meðfylgjandi myndum af fuglinum. Hægt var að ganga næstum alveg að honum en hann lét þó ekki handsama sig. Um er að ræða ungfugl og benti atferlið sterklega til þess að hann væri eitthvað slappur. Enginn ytri merki voru þó um áverka og ekki var hann grútarblautur. Flestir smyrlar eru farfuglar en einstaka fugl heldur til á Íslandi yfir veturinn. Í síðustu viku sást einmitt smyrill í árlegri vetrarfuglatalningu Náttúrustofunnar í Kolgrafafirði (sjá eldri frétt).