4. desember 2006

Fyrirlestur um íslenska mófugla

Á morgun, þriðjudaginn 5. desember, kl. 20:00, mun Tómas G. Gunnarsson, fuglafræðingur og forstöðumaður Háskólaseturs Snæfellsness, segja okkur frá íslenskum mófuglum.

Í fyrirlestrinum, sem verður skreyttur ljósmyndum Daníels Bergmann, verður fjallað almennt um íslenska mófugla, líffræði þeirra, sérstöðu Íslands og náttúruvernd.

Fyrirlesturinn er í boði Umhverfishóps Stykkishólms, Náttúrustofu Vesturlands og Háskólaseturs Snæfellsness.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

auglysing