8. febrúar 2005
Næstkomandi fimmtudagskvöld verður frítt í bíó í boði Umhverfishóps Stykkishólms og Náttúrustofu Vesturlands (10. febrúar kl. 20.00 á ráðhúsloftinu).
Sýnd verður á tjaldi breska, vandaða heimildamyndin "Árás á karlkynið" sem er alvöru umhverfis-sakamálamynd!
Myndin var sýnd í Ríkissjónvarpinu sumarið 1995, en stendur enn algjörlega fyrir sínu. Hún er á ensku með íslenskum texta og stundum íslensku tali. Myndin er 50 mín. á lengd, en gera skal ráð fyrir u.þ.b. 20 mín. umræðu á eftir. Allir velkomnir og um að gera að draga vinina og/eða elstu börnin með.
