8. nóvember 2004
Fræðslufyrirlestur um örninn
Næstkomandi miðvikudag, 10. nóvember, verður Kristinn Haukur Skarphéðinsson, fuglafræðingur frá Náttúrufræðistofnun Íslands , með fyrirlestur um örninn á vegum Náttúrustofu Vesturlands. Hann mun fara yfir sögu arnarstofnsins á Íslandi og verndun hans í 90 ár. Fjallað verður um þróun stofnstærðar, vöktun stofnsins, árekstra við hagsmuni mannsins o.fl. Mjög fróðlegur og skemmtilegur fyrirlestur. Fyrirlesturinn verður haldinn á 3. hæð ráðhúss Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3 í Stykkishólmi, kl. 20:00.. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
