8. nóvember 2005

Náttúrustofuþing á Húsavík

Sjö náttúrustofur starfa á landinu. Forstöðumenn og hluti af starfsfólki þeirra og stjórnarmönnum komu saman í Hvalamiðstöðinni á Húsavík 3.-4. nóvember síðastliðinn til að ræða sín mál en á Húsavík starfar yngsta náttúrustofa landsins, Náttúrustofa Norðausturlands. Fundurinn var gagnlegur og er ljóst að samstarf milli náttúrustofa fer vaxandi. Ný stjórn Samtaka náttúrustofa (SNS) var kosin en hana skipa Sveinn Kári Valdimarsson, formaður, Ingvar A. Sigurðssson og Guðrún Á. Jónsdóttir.

Eftir hádegi seinni daginn var haldið opið málþing þar sem starfsemi náttúrustofa var kynnt ásamt því að haldin voru áhugaverð erindi um klasa og náttúrustofur, fræðasetur, þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum og ástand rjúpnastofnsins og horfur. Málþingið var vel sótt og sköpuðust þar fjörlegar umræður.

Myndir (Ingvar A. Sigurðsson).

Samstarfssamningur Samtaka náttúrustofa og Hólaskóla – háskólans á Hólum undirritaður.

 

Hluti gesta á Náttúrustofuþingi.

 

Umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, hélt ræðu við upphaf þingsins.