
21. janúar 2009
Fyrirlestur um brandendur

smellið á auglýsinguna til að skoða hana betur.
Þriðjudaginn 27. janúar nk. mun Jón Einar Jónsson, líffræðingur við Háskólasetur Snæfellsness halda fyrirlestur á vegum Náttúrustofu Vesturlands, Umhverfishóps Stykkishólms og Háskólaseturs Snæfellsness.
Í fyrirlestrinum mun Jón segja frá brandönd, sem er nýleg fuglategund á Íslandi. Sagt verður frá lifnaðarháttum tegundarinnar og sérstæðu atferli, landnámi hennar í Borgarfirði á síðasta áratug 20. aldar og talningum sumurin 2007 og 2008.
Brandönd hefur komið sterk inn síðustu ár og er líkleg til að láta meira að sér kveða á Vesturlandi á komandi árum.
Fyrirlesturinn verður þriðjudaginn 27. janúar kl. 20:00 á ráðhúsloftinu í Stykkishólmi. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is