Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

3. febrúar 2009

Doktorsnemum fjölgar á Náttúrustofunni

Minkarannsóknir hafa um alllangt skeið verið kjölfestuverkefni Náttúrustofu Vesturlands. Rannsóknirnar hafa snúið að flestu því sem við kemur líffræði og stofnhegðun minks, s.s. atferli, landnotkun, stofnstærð, frjósemi, aldursdreifingu og líkamsástandi.

Rannveig Magnúsdóttir er þriðji doktorsneminn sem hefur störf á Náttúrustofunni. Hún hyggst einbeita sér að fæðuvistfræði minksins í doktorsverkefni sínu við Háskóla Íslands en verkefnið er samvinnuverkefni HÍ (aðalleiðbeinandi Páll Hersteinsson), Náttúrustofu Vesturlands og Oxford háskóla (sjá http://www.wildcru.org/). Í verkefninu notast hún við efnivið sem Náttúrustofan hefur aflað á undanförnum árum. Hafinn er fyrsti hluti verkefnisins, sem snýst um að skoða fæðuval minks á Snæfellsnesi frá aldamótum og mögulegar breytingar sem gætu hafa orðið á því samfara breytingum sem virðast hafa orðið í lífríki sjávar á tímabilinu og endurspeglast m.a. í slökum varpárangri sjófugla síðustu ár.

Fyrir er unnið að tveim öðrum doktorsverkefnum við Náttúrustofuna. Annað þeirra fjallar um landnotkun og mökunarkerfi minksins en hitt um stofngerð minks.

Rannveig Magnúsdóttir

Rannveig Magnúsdóttir, líffræðingur, við greiningar á magainnihaldi minka á rannsóknastofu Náttúrustofunnar.

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

Til baka á fréttasíðu