
17. febrúar 2009
Fyrirlestur um pokadýr í Ástralíu

Smellið á auglýsinguna til að skoða hana betur.
Á morgun, miðvikudaginn 18. febrúar, mun Rannveig Magnúsdóttir, Ástralíufari og doktorsnemi í líffræði halda fyrirlestur á vegum Náttúrustofu Vesturlands og Umhverfishóps Stykkishólms um pokadýr í Ástralíu.
Pokadýr eru um margt mjög athyglisverð, kunnust þeirra eru kengúrur og kóalabirnir en til eru fleiri spennandi pokadýr sem fáir vita um. Rannveig dvaldi í Ástralíu í 18 mánuði og stundaði rannsóknir á fenjapokamúsinni (Antechinus minimus) ásamt því að ferðast vítt og breitt um álfuna. Í fyrirlestrinum fjallar hún um uppruna og einkenni pokadýra og sýnir ljósmyndir og myndbönd af nokkrum þeim pokadýrum sem hún hitti á ferðum sínum í Ástralíu.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20 og verður haldinn á ráðhússloftinu, Stykkishólmi. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Rannveig Magnúsdóttir er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og lauk MS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2005 í samstarfi við Deakin háskóla í Geelong, Ástralíu. Hún útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2007 og stundar nú doktorsnám í líffræði við Háskóla Íslands í samstarfi við háskólann í Oxford og Náttúrustofu Vesturlands.
Ágrip erindis
Pokadýr í Ástralíu eru miklu stærri og fjölbreyttari hópur dýra en margir gera sér grein fyrir. Kengúrur og kóalabirnir koma flestum kunnuglega fyrir sjónir en í þessari fjarlægu heimsálfu leynast margar aðrar furðuverur sem fáir vita um, m.a. pokamerðir, maurapokar, pokagreifingjar, pokaíkornar og pokamoldvörpur. Eins og þessi nöfn benda til líkjast sum þessara dýra öðrum alls óskyldum fylgjuspendýrum frá öðrum heimsálfum og hér hefur því orðið samhliða þróun. Pokadýr eru af mörgum stærðum og gerðum; minnsta pokamúsin (Planigale ingrami) er einungis 4 grömm en rauðkengúran (Macropus rufus) getur orðið 70-80 kíló. Mörg risapokadýr voru til áður en maðurinn fluttist til Ástralíu en þau dóu öll út fyrir um 47 þúsund árum og talið er að maðurinn hafi haft þar mikil áhrif. Diprotodon var stærsta pokadýr sem vitað er að hafi lifað en það var tveggja metra hátt og vó yfir tvö tonn. Meðal skyldra núlifandi tegunda eru kóalabirnir og vambar.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is