Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

26. mars 2009

Fyrirlestur - Milli lands og Eyja

Milli lands og eyja

Mánudaginn 30. mars nk. mun Birgir Jónsson jarðfræðingur, dósent við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands halda fyrirlestur á vegum Náttúrustofu Vesturlands og Háskólaseturs Snæfellsness.

Fjallað verður lauslega í máli og myndum um eldvirkni á miðsuðurströndinni, Heimaeyjargosið 1973 og varnir gegn hraunrennsli í því gosi, hlauphættu í Landeyjum frá gosum í Kötlu og Eyjafjallajökli, eðli sandstrandarinnar og útræði frá ströndinni, ágang og landbrot Markarfljóts, samgöngur til Eyja og væntanlega ferjuhöfn á Bakkafjöru.

Fyrirlesturinn verður haldinn á lofti ráðhússins í Stykkishólmi og hefst kl. 20:00. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

Til baka á fréttasíðu