Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

14. apríl 2009

Kynning á nýrri gönguleið eftir Snæfellsnesfjallgarði

Í kvöld, þriðjudaginn 14. apríl, verður haldinn kynningarfundur um hugmynd að nýrri gönguleið eftir Snæfellsnesfjallgarði, frá Ljósufjöllum að Snæfellsjökli.

Gunnar Njálsson ferðamálafræðingur verður með skjásýningu og heldur erindi. Fulltrúar frá Ferðafélagi Íslands koma og kynna starfsemi ýmissa deilda félagsins á landinu.

Kynningarfundurinn er áhugaverður fyrir fólk í ferðaþjónustu, ásamt göngu - og útivistarfólki. Hann verður haldinn í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði og hefst kl. 20.00.

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

Til baka á fréttasíðu