
29. apríl 2009
Kynning á Eldfjallasafni í Stykkishólmi
Í sumarbyrjun verður opnuð kynningarsýning á Eldfjallasafni í Stykkishólmi. Um er að ræða alþjóðlegt safn listaverka og annarra muna tengda eldgosum úr einstöku safni Haraldar Sigurðssonar jarðfræðiprófessors, sem stundað hefur rannsóknir á eldfjöllum um allan heim í yfir fjörutíu ár. Í tengslum við sýninguna verður Haraldur með geysilega áhugaverðar fræðsluferðir um Snæfellsnes á mánudögum og þriðjudögum í sumar. Nánari upplýsingar má finna í kynningarbæklingi um Eldfjallasafnið og á heimasíðu safnsins, www.eldfjallasafn.is. |
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is