
16. júní 2009
Grútarblautur örn
Ferðafólk í útilegu tilkynnti lögreglunni á Snæfellsnesi um örn í vanda í Nátthaga við Berserkjahraun seint síðastliðið föstudagskvöld. Starfsmaður Náttúrustofunnar mætti á staðinn og handsamaði örninn, sem reyndist vera grútarblautur. Grúturinn eyðileggur einangrunargildi fiðursins og gerir fuglinum jafnframt erfitt um flug.
Fuglinn bar merki og hafði verið merktur sem ungi á eyju í Hvammsfirði árið 2008.
Hann var fluttur til Borgarness, þar sem Kristinn Haukur Skarphéðinsson, starfsmaður Náttúrufræðistofnunar, tók við honum og flutti áfram í Húsdýragarðinn í Reykjavík til aðhlynningar. Þar verður fiðrið þvegið og vonandi kemst fuglinn aftur til síns heima innan skamms.
![]() |
![]() |
![]() |
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is