Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

3. júní 2009

Vogmey rak á fjöru í Stykkishólmi

vogmey

Í gær tilkynntu nemendur í 6. bekk Grunnskólans í Stykkishólmi um sérkennilegan fisk, sem rekið hafði á fjöru við Hamraenda í Stykkishólmi.

Fulltrúi Náttúrustofu Vesturlands mætti á staðinn og greindi fiskinn sem vogmey (Trachipterus arcticus). Vogmær er allstór, langvaxinn og þunnvaxinn fiskur. Hún er silfurgljáandi með rauðan bakugga eftir endilöngum líkamanum og sérkennilegan rauðan sporð sem minnir á blævæng. Vogmeyjar geta orðið þriggja metra langar en þessi var um 125 cm. Heimkynni tegundarinnar eru í Norðaustur-Atlantshafi frá Marokkó til Íslands en hún hefur veiðst á 60-600 metra dýpi auk þess að finnast stundum rekin á fjörur. Að sögn Hlyns Péturssonar, útibússtjóra Hafrannsóknastofnunarinnar í Ólafsvík, fá fiskiskip stundum vogmeyjar við vestanvert landið og þær finnast einnig stundum reknar á fjörur í grennd við Ólafsvík og víðar þótt líklega hefðu þær ekki fundist jafn innarlega í Breiðafirði og þetta. Í frétt sem birt var hér fyrir rúmum tveim árum, 18. apríl 2007, sögðum við frá fundi vogmeyjar í grennd við Bjarnarhöfn, um 11 km vestar. Fæða vogmeyjarinnar er einkum smáfiskar, smokkfiskar, kolkrabbar, rækja o.fl.

Helstu heimildir:
Gunnar Jónsson og Jónbjörn Pálsson (2006). Íslenskir fiskar. Vaka-Helgafell.
Muus, B.J., Nielsen, J.G., Dahlstrøm, P. & Nyström, B.O. 1999. Fiskar og fiskveiðar við Ísland og Norðvestur-Evrópu. Mál og Menning.

vogmaer_krakkar
smellið á myndina til að skoða hana betur.

Vogmærin við fætur krakkanna sem fundu hana í fjöru við Hamraenda í Stykkishólmi.

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

Til baka á fréttasíðu