
23. júní 2009
Fjölbreytt og skemmtilegt skrifstofustarf
Laust er til umsóknar skrifstofustarf á Náttúrustofu Vesturlands. Starfið er einkar fjölbreytt og felur m.a. í sér umsjón fjármála, meðhöndlun rannsóknagagna, daglega umsýslu Breiðafjarðarnefndar, umsjón greina- og bókasafns, kynningarmál og almenn ritara- og skrifstofustörf. Um fullt starf er að ræða en mögulegt væri þó að semja um hlutastarf.
Auglýsingu um starfið má skoða með því að smella á myndina hér fyrir neðan:
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is