Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

25. júní 2009

Erni sleppt í gær

Í frétt hér að neðan (frá 16. júní) var sagt frá því þegar ársgamall grútarblautur örn var handsamaður á Snæfellsnesi. Undanfarna daga hefur hann dvalið í Húsdýragarðinum þar sem hann var þveginn, losaður við grútinn og gefið að éta en hann hreifst helst af niðurskornum nautahjörtum.

Í dag var erninum sleppt í Helgafellssveit. Hann var kraftmikill að sjá og tók flugið um leið og tækifæri gafst. Hann sveimaði í nokkurn tíma um svæðið áður en hann settist um stund 1-2 km frá sleppingarstað. Björgunin virðist hafa borið góðan árangur.

Arnarvarp gekk ágætlega í vor samanborið við undanfarin ár. Samtals fundust hreiður 44 arnarpara en heildarfjöldi para í stofninum er um 65. Á næstu dögum munu starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands fljúga yfir varpsvæði arna og kanna hverjir þeirra hafi komið upp ungum. Síðustu ár hafa oftast 23-25 pör komið 1-2 ungum á legg, þar af um þriðjungur 2 ungum.

Hér er stutt myndband af sleppingunni í dag. Því miður bar sleppinguna brátt að svo myndatökukonan hafði ekki tekið sér stöðu þegar örninn ruddist út úr búrinu.

Erni sleppt
Smellið á myndina til að skoða myndbandið.

http://www.youtube.com/watch?v=bTX3MU_4KwI

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

Til baka á fréttasíðu