Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

6. júlí 2009

Litfögur fiðrildi


Undanfarna daga og vikur hafa litfögur fiðrildi verið algeng sjón á Vesturlandi eins og víða annars staðar á landinu en óvenjulega mikið af þeim hefur borist til landsins í sumar. Starfsfólk Náttúrustofunnar hefur fengið fregnir af og/eða séð þistilfiðrildi á nokkrum stöðum á Snæfellsnesi og um helgina fréttist af aðmírálsfiðrildi í Staðarsveit.

Meðfylgjandi mynd tók Róbert A. Stefánsson af þistilfiðrildi á toppi Drápuhlíðarfjalls á Snæfellsnesi 3. júlí síðastliðinn.

Þistilfiðrildi

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

Til baka á fréttasíðu