Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

26. ágúst 2009

Stjórnun strandsvæða

Í gær fengu Náttúrustofan og Háskólasetur Snæfellsness góða gesti. Heimsóknin var hluti af vettvangsferð kennara og nemenda í námskeiði um stjórnun strandsvæða við Háskólasetur Vestfjarða á Ísafirði. Markmið heimsóknarinnar var að kynna starfsemi Náttúrustofunnar, Háskólaseturs Snæfellsness og Breiðafjarðarnefndar ásamt því að ræða málefni verndarsvæðis Breiðafjarðar og hafverndarsvæða almennt. Forstöðumaður Náttúrustofunnar kynnti starfsemi hennar og jafnframt sérstöðu náttúru Breiðafjarðar. Jón Einar Jónsson, forstöðumaður Háskólaseturs Snæfellsness, kynnti starfsemi setursins og Kolbrún Reynisdóttir, formaður Breiðafjarðarnefndar, kynnti starfsemi nefndarinnar og verndaráætlun sem er í vinnslu.

Kennari námskeiðsins er Bradley Barr, stefnumótunarráðgjafi hjá bandarísku haf- og loftslagsstofnuninni NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration, www.noaa.gov), sem m.a. fer með stjórn allra hafverndarsvæða við Norður-Ameríku. Hann hefur mikla reynslu af stjórnun strandsvæða og flutti áhugavert erindi um bandarísku hafverndarsvæðin og skipulag þeirra. Ljóst er að Íslendingar geta lært margt af Bandaríkjamönnum hvað þetta varðar, enda við komnir mjög skammt á veg í samanburði við þá.

Eitt af því athyglisverðasta sem fram kom í máli Barr var að talsverður munur virðist vera á því hvernig verndarsvæði Breiðafjarðar er kynnt á erlendum vettvangi og raunverulegu fyrirkomulagi verndarinnar. Helsti munurinn felst í því að svæðið er kynnt sem hafverndarsvæði en samkvæmt lögum nr. 54/1995 um vernd Breiðafjarðar nær verndunin aðeins til eyja og strandlengju en ekki hafsvæðisins.

Fundarmenn
Hluti fundarmanna í umræðum um stjórnun strandsvæða á ráðhúsloftinu í Stykkishólmi

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

Til baka á fréttasíðu