
24. ágúst 2009
Nýr starfsmaður á Náttúrustofunni
Pálmi Freyr Sigurgeirsson hefur hafið störf á Náttúrustofu Vesturlands. Hann leysir Sigríði Elísabet Elisdóttur af hólmi, sem snúið hefur til annarra starfa. Starfsfólk Náttúrustofunnar kveður Sigríði með söknuði og þakkar fyrir samveruna og frábærlega unnin störf síðastliðin átta ár.
Starf Pálma felur m.a. í sér vinnu fyrir Breiðafjarðarnefnd, umsjón fjármála og bókhalds Náttúrustofunnar, gagnavinnslu og ýmislegt fleira. Hægt er að hafa samband við Pálma í síma 433 8121 eða með tölvupósti á netföngin palmi@nsv.is og breidafjordur@nsv.is.
Tólf umsækjendur voru um stöðuna. Sex þeirra voru boðaðir í viðtal og var Pálmi valinn úr þeirra hópi.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is