
1. október 2009
Laskaður örn undir læknishendur
Brynjar Hildibrandsson í Bjarnarhöfn hafði samband við Náttúrustofuna í gær og tilkynnti um örn sem talinn væri laskaður á væng. Heimafólkið hafði handsamað fuglinn, sett í hús og gefið að éta. Örninn er fimm ára gamall kvenfugl, sem merktur var sem ungi á Mýrum sumarið 2004.
Náttúrustofan sótti örninn, sem fluttur var til aðhlynningar á Dýraspítalann í Víðidal og síðan í Húsdýragarðinn í Reykjavík, þar sem hann verður í umsjá starfsmanna og Kristins Hauks Skarphéðinssonar, arnarsérfræðings Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Skoðun dýralæknis leiddi í ljós vökvafylltan hnúð við axlarlið. Hann var tæmdur og svæðið sótthreinsað. Í kjölfarið fer örninn á nokkurra daga sýklalyfjakúr. Holdafar össunnar er fremur bágborið og verður þess vegna lögð áhersla á að fá hana til að nærast vel. A.m.k. fyrst um sinn verður fuglinn ekki til sýnis í garðinum.



Smellið á myndirnar til að stækka þær.
Ljósmyndir: Róbert A. Stefánsson.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is