Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

1. október 2009

Náttúrustofuþing 2009 í Sandgerði

Fimmtudaginn 8. október verður hið árlega Náttúrustofuþing haldið í Sandgerði. Þetta er í fimmta sinn sem náttúrustofur halda opna ráðstefnu þar sem kynnt er brot af því sem unnið er að á náttúrustofunum. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Dagskrá Náttúrustofuþingsins er fjölbreytt og áhugaverð. Náttúrustofa Vesturlands mun kynna rannsóknir sínar á ágengum tegundum í tveim erindum; annars vegar flytur Menja von Schmalensee fyrirlestur um ágengar plöntur í Stykkishólmi en hins vegar fjallar Róbert A. Stefánsson um hluta af niðurstöðum rannsókna á mink.

Dagskrána í heild má nálgast með því að smella hér.

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

Til baka á fréttasíðu