Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

12. nóvember 2009

Hólmarar á Líffræðiráðstefnunni 2009

Hluti af rannsóknum Háskólaseturs Snæfellsness (HS) og Náttúrustofu Vesturlands (NSV) var kynntur á stórri ráðstefnu um líffræðirannsóknir á Íslandi, sem haldin var í Reykjavík 6.-7. nóvember í  tilefni af 30 ára afmæli Líffræðifélags Íslands og 35 ára afmæli Líffræðistofnunar Háskólans. Ráðstefnan var feykivel sótt en þar voru fjölbreyttar rannsóknir kynntar í 105 erindum og á 110 veggspjöldum.

Rannsóknastofnanirnar í Stykkishólmi mættu til leiks með þrjá fyrirlestra og fimm veggspjöld. Róbert A. Stefánsson (NSV) sagði frá rannsóknum sínum, Menju von Schmalensee og Páls Hersteinssonar á stærðarmun kynjanna hjá minkum og áhrifum hans á lífssögu ungra dýra. Fyrir Háskólasetrið talaði Freydís Vigfúsdóttir um kríurannsóknir sínar á Snæfellsnesi og Jón Einar Jónsson sagði frá stofnstærð æðarfugls. Voru allir fyrirlestrarnir haldnir fyrir troðfullum sölum í Öskju og Norræna húsinu.

Veggspjaldasýningin á föstudagskvöldinu var einnig vel sótt. Kynntar voru rannsóknir Háskólasetursins á álftum og dílaskörfum og Náttúrustofunnar á framandi ágengum plöntum, aðferðum við úrvinnslu gagna um ferðir dýra og greiningu á fæðu minka á Snæfellsnesi á árunum 2001-2008.

Veggspjöldin frá ráðstefnunni verða til sýnis á Vísindavöku W23-hópsins, sem haldin verður í Ólafsvík nk. laugardag, 14. nóvember.

Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um framlög Náttúrustofunnar og Háskólasetursins á líffræðiráðstefnunni.

 

Fyrirlestrar

Freydís Vigfúsdóttir, Guðmundur A. Guðmundsson, Tómas G. Gunnarsson og Jennifer A. Gill (2009). Af kríum í kreppu.

Jón Einar Jónsson (2009). Stofnstærðarbreytingar æðarfugls á Íslandi.

Róbert A. Stefánsson, Menja von Schmalensee og Páll Hersteinsson (2009) Stærðarmunur kynjanna og áhrif hans á lífssögu ungra minka (Neovison vison).
Útdráttur

Veggspjöld

Arnþór Garðarsson og Jón Einar Jónsson (2009). Um dreifingu og fjölda dílaskarfs.

Menja von Schmalensee og Róbert A. Stefánsson (2009). Ágengar plöntur í Stykkishólmi. Útbreiðsla og tillögur um mótvægisaðgerðir.
Útdráttur | Veggspjald

Menja von Schmalensee, Róbert A. Stefánsson og Páll Hersteinsson (2009). How to choose a location sampling interval in telemetry studies on animal home ranges.
Útdráttur | Veggspjald

Rannveig Magnúsdóttir, Menja von Schmalensee, Róbert A. Stefánsson, David W. Macdonald and Páll Hersteinsson (2009). Changes in diet of mink (Neovison vison) in the Snæfellsnes Peninsula.
Útdráttur | Veggspjald

Una Kristín Pétursdóttir og Jón Einar Jónsson (2009). Umferð álfta um Álftafjörð í Helgafellssveit, Snæfellsnesi.

 

 

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

Til baka á fréttasíðu