Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

24. nóvember 2009

Glókollur – örsmár konungur fuglanna

Róbert A. Stefánsson og Menja von Schmalensee, Náttúrustofu Vesturlands, halda fyrirlestur á vegum Náttúrustofunnar og Umhverfishóps Stykkishólms á ráðhúsloftinu, fimmtudaginn 26. nóvember kl. 20.  

Glókollur er einn af nýlegum landnemum á Íslandi. Hann er minnsti varpfugl í Evrópu, staðfugl, étur skordýr og heldur til í barrskógum. Náttúrustofa Vesturlands hefur fylgst með útbreiðslu glókollsins á Vesturlandi frá árinu 2003. Fjallað verður almennt um glókollinn og lifnaðarhætti hans, hvernig útbreiðsla hans hefur þróast og hvers vegna hann er nefndur fuglakóngur í Skandinavíu.

Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis


 

Smellið á myndina til að sjá hana í hærri upplausn.

 


Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu