Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

24. nóvember 2009

Vinningshafar Vísindavöku

Á vísindavöku, sem haldin var af hópnum W23 þann 14. nóvember síðastliðinn í Félagsheimilinu Klifi, var gestum boðið að taka þátt í getraun. Verðlaun voru tvö eintök af bókinni Ströndin í náttúru Íslands, árituð af höfundi, Guðmundi Páli Ólafssyni. Dregið var úr réttum svörum og upp komu nöfn tveggja 8 ára barna, þeirra Jönu Hermannsdóttur og Gylfa Örvarssonar. Myndin var tekin við afhendingu verðlaunanna. Aðstandendur vísindavökunnar óska þeim til hamingju með vinningana og þakka þeim og öðrum fyrir þátttökuna.

W23 er samstarf fimm náttúrutengdra stofnana á Snæfellsnesi sem efla vilja náttúruvísindi: Háskólaseturs Snæfellsness, Náttúrustofu Vesturlands, útibús Hafrannsóknastofnunarinnar í Ólafsvík, Varar, sjávarrannsóknarseturs við Breiðafjörð og Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.  Samstarfið er styrkt af Vaxtarsamningi Vesturlands.


Gylfi Örvarsson og Jana Hermannsdóttir við afhendingu verðlaunanna.
(Myndina tók Erla Björk Örnólfsdóttir)

 


Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu