
4. desember 2009
Metnaðarfullan, bindandi og sanngjarnan samning í Kaupmannahöfn
Laugardaginn 12. desember kl. 17 standa Umhverfishópur Stykkishólms og Náttúrustofa Vesturlands fyrir samverustund í Hólmgarði, Stykkishólmi, til að vekja athygli á mikilvægi Kaupmannahafnarfundarins, ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, sem fram fer dagana 7.-18. desember. Í boði verður heitur jóladrykkur og piparkökur í húsi kvenfélagsins. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér kerti og/eða kyndla og góða skapið. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Uppákoman er hluti af alþjóðlegum viðburði sem umhverfis- og mannréttindasamtök o.fl. undir regnhlífinni TckTckTck standa fyrir í öllum heimshornum þennan dag.
(sjá http://tcktcktck.org/realdeal).
Vonir standa til að viðburðurinn verði einn sá allra stærsti til þessa um loftslagsmál, en um 1.000 samkomur eru þegar komnar á skrá í
90 löndum og mun eflaust fjölga til muna
þegar nær dregur.

Á næstu dögum munu leiðtogar heimsins reyna að ná samkomulagi um aðgerðir til að koma í veg fyrir hörmungar vegna loftslagsbreytinga. Markmið samverustundarinnar er að fólk komi saman á friðsamlegan hátt og sendi skýr skilaboð til Kaupmannahafnar um að þar nái fulltrúar þjóðanna samningi sem felur í sér metnað til að ná árangri, sé lagalega bindandi fyrir aðildarþjóðir og sanngjarn fyrir okkur og komandi kynslóðir. Myndir af öllum fundunum verða settar inn á sameiginlega heimasíðu verkefnisins.
Þegar þetta er ritað hafa á Íslandi verið skráðir atburðir í Stykkishólmi og Reykjavík, en hafir þú áhuga á að standa fyrir sams konar atburði á öðrum stöðum geturðu skráð atburðinn á heimasíðu TckTckTck, http://tcktcktck.org/realdeal.
Mikilvægar heimasíður:
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is