Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

14. desember 2009

Vel heppnaðar loftslagskertavökur um allan heim

Áætlað er að mörg hundruð þúsund manns hafi mætt á meira en 3.200 loftslagskertavökur í 139 löndum, sem haldnar voru síðastliðinn laugardag, 12. desember, til að hvetja ráðamenn heimsins, sem funda á loftslags-ráðstefnunni í Kaupmannahöfn, til að gera sanngjarnan, metnaðarfullan og bindandi samning um losun gróðurhúsalofttegunda. Meira en 11 milljónir jarðarbúa hafa skrifað undir yfirlýsingu um að vera tilbúinir fyrir raunverulegar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum (sjá www.tcktcktck.org). Í gær, 13. desember hringdu kirkjuklukkur um allan heim, þ.á.m. í Stykkishólmi, 350 sinnum til að vekja athygli á því að styrkur koltvíoxíðs í andrúmslofti er ekki talinn mega vera hærri en 350 hlutar úr milljón til að athafnir manna hafi ekki alvarleg áhrif á loftslag jarðar. Styrkurinn er nú um 390 og fer ört hækkandi.

Á Íslandi voru skráðar kertasamkomur í Stykkishólmi, Borgarnesi og Reykjavík. Samkomunni í Reykjavík var frestað til þriðjudags vegna veðurs en Vestlendingar létu rigningu og rok ekki aftra sér. Hólmarar voru með fjölmennustu kertavöku landsins, þar sem 25 manns mættu og áttu góða stund saman.

Ljósmyndir frá kertavökum hvaðanæva úr heiminum má t.d. sjá á:

http://www.flickr.com/photos/realdeal09/sets/72157622984683268/

http://tcktcktck.org/stories/campaign-stories/you-are-so-beautiful-most-artistic-images-real-deal

Meðfylgjandi ljósmynd tók Þorsteinn Eyþórsson á samkomunni í Stykkishólmi, þar sem bæjarbúar tóku sér hlé frá jólaamstrinu og kveiktu á kerti í rigningunni.


Deila

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu