
8. janúar 2010
Fuglalíf blómstrar
Nú er lokið árlegri talningu vetrarfugla sem fer fram í kringum áramót. Að þessu sinni voru fuglar taldir mun víðar á Snæfellsnesi en áður (sjá meðfylgjandi kort).
Á talningarsvæðunum voru samtals um 20 þúsund fuglar af 33 tegundum. Fuglalífið var óvenju blómlegt líkt og síðasta vetur, að líkindum vegna mikillar síldargengdar í Breiðafirði annan veturinn í röð. Algengasti fuglinn var æðarfugl en þar á eftir komu hvítmáfur og svartbakur. Í töflu hér fyrir neðan má sjá
10 algengustu fuglategundirnar og í annarri töflu samanlagðan fjölda fugla á öllum talningarsvæðunum á Snæfellsnesi. Af einstökum talningarsvæðum voru flestir fuglar í Grundarfirði, 6.562 talsins.
| Tegund | Fjöldi |
| Æðarfugl | 5.557 |
| Hvítmáfur | 4.844 |
| Svartbakur | 3.114 |
| Fýll | 1.349 |
| Sendlingur | 893 |
| Tjaldur | 799 |
| Bjartmáfur | 559 |
| Stokkönd | 370 |
| Toppskarfur | 252 |
| Hávella | 192 |
10 algengustu fuglategundirnar
Náttúrufræðistofnun tekur við niðurstöðum talninganna og búast menn þar á bæ við að talið hafi verið á um 170 svæðum á Íslandi í ár.
Talningarmenn á Snæfellsnesi að þessu sinni voru Daníel Bergmann, Róbert A. Stefánsson og Jón Einar Jónsson.
Tæplega 20 þúsund fuglar af 33 tegundum sáust í talningunni á Snæfellsnesi.
| Tegund | Fjöldi | Tegund | Fjöldi | |
| Lómur | 36 | Tjaldur | 799 | |
| Himbrimi | 13 | Stelkur | 9 | |
| Fýll | 1.349 | Tildra | 34 | |
| Dílaskarfur | 83 | Sendlingur | 893 | |
| Toppskarfur | 252 | Stormmáfur | 2 | |
| Ógr. skarfur | 36 | Silfurmáfur | 15 | |
| Álft | 42 | Svartbakur | 3.114 | |
| Stokkönd | 370 | Hvítmáfur | 4.844 | |
| Rauðhöfðaönd | 62 | Bjartmáfur | 559 | |
| Hávella | 192 | Hettumáfur | 59 | |
| Straumönd | 65 | Rita | 1 | |
| Æðarfugl | 5.557 | Ógr. máfur | 800 | |
| Æðarkóngur | 2 | Teista | 39 | |
| Gulönd | 19 | Músarrindill | 1 | |
| Toppönd | 161 | Snjótittlingur | 136 | |
| Haförn | 8 | Stari | 154 | |
| Fálki | 3 | Hrafn | 147 | |
| Smyrill | 2 | |||
| Samtals | 19.858 | Fjöldi tegunda | 33 |

Talningarsvæðin eru merkt með bláum lit. Smellið á myndina til að sjá hana stærri.
(Kortið byggir á stafrænum kortagrunni Landmælinga Íslands.)
Á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands (www.ni.is) segir m.a. um vetrarfuglatalningar:
“Árlegar vetrarfuglatalningar hófust á Íslandi um jólaleytið 1952 að amerískri fyrirmynd. Þetta verkefni er ein lengsta samfellda vöktun sem stunduð hefur verið hér á landi og sú sem tekur til flestra fuglategunda. Fyrsta árið var talið á 11 svæðum en þeim fjölgaði svo jafnt og þétt næstu árin og voru þau orðin 44 árið 1958 víðsvegar um land en fremur fá svæði bættust síðan við fram yfir 1970 (Ævar Petersen 1983). Fuglaáhugamenn tóku þessu nýja verkefni fagnandi og töldu margir af upphafsmönnum svæði sín áratugum saman eftir það. Frá upphafi hafa áhugamenn unnið þetta verk í sjálfboðavinnu og á síðustu árum hafa hátt á annað hundrað manns tekið þátt. Talningar fóru lengst af fram á frídegi milli jóla og nýárs og oft varð annar dagur jóla fyrir valinu. Af þeim sökum hafa talningar þessar oft verið nefndar „jólatalningar”.
Markmið vetrarfuglatalninga er að safna upplýsingum um fjölda og dreifingu fugla að vetrarlagi. Talningar eru staðlaðar og geta því nýtist til vöktunar einstakra stofna.”
Nánari upplýsingar um vetrarfuglatalningar á Íslandi má finna á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands, http://www.ni.is/dyralif/fuglar/vetrarfuglar/
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is