
5. mars 2010
Auglýst eftir umhverfisfulltrúa

Náttúrustofa Vesturlands í Stykkishólmi auglýsir eftir umhverfisfulltrúa til að sinna umhverfismálum sveitarfélaganna fimm á Snæfellsnesi. Um er að ræða 100% stöðu, sem felur í sér vinnu að og umsjón með sjálfbærnivottun Snæfellsness (sjá www.nesvottun.is og www.earthcheck.org). Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf sem getur falið í sér tækifæri til að hafa víðtæk áhrif á sviði umhverfismála.
Leitað er eftir kraftmiklum, drífandi, jákvæðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn áhuga á umhverfismálum, sem hefur góða samskiptahæfni og getur unnið sjálfstætt.
Umsækjandi þarf að hafa lokið háskólanámi í umhverfisfræði eða náttúrufræði. Framhaldsmenntun á háskólastigi er æskileg. Færni í að miðla upplýsingum á rituðu og töluðu máli og góð enskukunnátta er nauðsynleg.
Um laun, réttindi og skyldur fer samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags.
Skriflegri umsókn skal skila til Náttúrustofu Vesturlands ásamt upplýsingum um náms- og starfsferil og stuttri greinargerð um það hvers vegna umsækjandi telur sig hæfan í starfið. Meðmæli eru æskileg.
Umsóknir skal senda í tölvupósti á netfangið robert@nsv.is eða bréfleiðis til Náttúrustofu Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, eigi síðar en 22. mars.
Upplýsingar veitir Róbert í s. 433 8121, 898 6638 eða í tölvupósti, robert@nsv.is. Upplýsingar um Náttúrustofu Vesturlands má finna á www.nsv.is.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is