Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

12. mars 2010

Úrslitatilraun til að bjarga erni

Í fyrrakvöld sagði Stöð 2 frá skurðaðgerð sem framkvæmd var á haferni á dýraspítalanum í Víðidal. Örninn hefur verið í umsjá Húsdýragarðsins og Náttúrufræðistofnunar undanfarna mánuði.

Fuglinn var merkur sem ungi á hreiðri á Mýrum sumarið 2004 en heimilisfólkið í Bjarnarhöfn á norðanverðu Snæfellsnesi fann hann laskaðan við Bjarnarhafnarfjall undir lok september í fyrra. Starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands sóttu fuglinn og komu honum í hendur Kristins Hauks Skarphéðinssonar, arnarsérfræðings Náttúrufræðistofnunar Íslands. Farið var með fuglinn í skoðun á dýraspítalann í Víðidal þar sem í ljós kom vökvafyllt kýli við vænglið, sem var tæmt og hreinsað. Undanfarna rúma fimm mánuði hefur örninn svo dvalið í Húsdýragarðinum án þess að sýna umtalsverðar framfarir. Því var ákveðið að láta dýralækni gera úrslitatilraun til að hjálpa erninum. Liðurinn var enn bólginn og við röntgenmyndun kom í ljós það sem virtist vera aðskotahlutur í liðnum. Skorið var á kýlið og liðurinn hreinsaður. Næstu daga verður örninn hafður á sýklalyfjakúr til að fyrirbyggja frekari sýkingu. Skemmdir gætu þó hafa orðið á liðnum svo óvíst er um batahorfur.

Fjallað var um þennan örn á heimasíðu Náttúrustofunnar þann 1. október síðastliðinn: http://www.nsv.is/091001_laskadur_orn_undir_laeknishendur.htm.

Frétt Stöðvar 2 er hér:
http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=STOD2&programID=d93d6ddc-f3df-4c27-90e2-28d49738f306&mediaSourceID=cd55dcde-f1b3-4ec6-a7f1-766faf15c0a1&mediaClipID=5d1a5be9-11f4-4e8b-82b4-a3c0d618a367

 

Deila

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu