Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

12. apríl 2010

Umhverfismál og vottun Vestfjarða

Laugardaginn 17. apríl standa Ferðamálasamtök Vestfjarða fyrir afar áhugaverðri ráðstefnu í Dýrafirði. Ráðstefnan ber yfirskriftina „Umhverfisvottun Vestfjarða“ en þar munu sérfræðingar víða að fjalla um ýmislegt er snýr að umhverfismálum. Á meðal fyrirlesara eru þrír Snæfellingar, þar af tveir starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands. Róbert A. Stefánsson mun fjalla um umhverfisvottun Snæfellsness, hvað hún felur í sér og hverju hún hefur skilað en Menja von Schmalensee fjallar um framtíðarsýn um umhverfisvottað Ísland. Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi, mun fjalla um reynslu Stykkishólmsbæjar af frumkvöðlastarfi á sviði umhverfismála.

Ráðstefnan verður haldin á Hótel Núpi í Dýrafirði og hefst kl. 11, laugardaginn 17. apríl. Allir eru velkomnir.

Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast á vef Ferðamálasamtaka Vestfjarða, http://www.vestfirskferdamal.is/skraarsafn/skra/53/

Tengdir hlekkir á Fésbókinni:
Ferðamálasamtök Vestfjarða: http://www.facebook.com/home.php?ref=home#!/vestfirdir
Umhverfisvottað Ísland: http://www.facebook.com/home.php?ref=home#!/pages/Umhverfisvottad-Island-Eco-certified-Iceland/437050060157

 

Deila

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu