
26. apríl 2010
Fyrirlestur um skötusel
Jón Sólmundsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnuninni, áður útibússtjóri stofnunarinnar í Ólafsvík, flytur erindi um skötusel
og lifnaðarhætti hans næstkomandi þriðjudag.
Sjómenn við sunnanverðan Breiðafjörð hafa í
síauknum mæli orðið varir við skötusel á síðustu
árum, enda er tegundin ein þeirra sem breytt hafa
útbreiðslu sinni á Íslandsmiðum á síðustu árum.
Fyrirlesturinn, sem er á vegum Náttúrustofu Vesturlands og Háskólaseturs Snæfellsness, verður þriðjudaginn 27. apríl kl. 20 á ráðhúsloftinu,
Hafnargötu 3 í Stykkishólmi.
Nánari upplýsingar má fá með því að smella á meðfylgjandi mynd af auglýsingunni.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is