Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

1. júní 2010

Teymi sérfræðinga kemur að aðgerðum gegn ágengum plöntum

Náttúrustofa Vesturlands hefur fengið helstu sérfræðinga landsins um landgræðslu og ágengar plöntur til liðs við sig í samstarfsverkefni sínu við Stykkishólmsbæ um aðgerðir gegn ágengum plöntum í bæjarlandinu.

Þann 20. maí síðastliðinn stóð Náttúrustofan fyrir sérfræðingafundi í Stykkishólmi þar sem 7 sérfræðingar frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Landgræðslu ríkisins, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands vörðu einum degi til að skoða aðstæður og veita ráðgjöf.

Allar þessar stofnanir munu leggja verkefninu lið með áframhaldandi ráðgjöf en einnig munu Landgræðslan og Landbúnaðarháskólinn taka þátt í að mæla árangur mismunandi aðferða, Náttúrufræðistofnun mun leggja til greiningu á loftmyndum og Háskólinn mun standa fyrir rannsóknum á félagslegum þáttum.

Verkefnið hefur vakið mikinn áhuga sérfræðinga og annarra aðila sem tengjast málefninu um allt land. Á fundinum lögðu sérfræðingarnir áherslu á ánægju sína með þetta einstæða framtak Stykkishólmsbæjar og að verkefnið væri mikilvægt frumherjaverkefni sem horft yrði til við ákvarðanatöku um aðgerðir gegn viðkomandi tegundum á landsvísu. Þeir vildu einnig árétta að um langtímaverkefni og því þolinmæðisverk væri að ræða

Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.


Ásrún Elmarsdóttir, Borgþór Magnússon, Kristín Svavarsdóttir,
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Sigurður H. Magnússon og
Menja von Schmalensee koma frá stærstu lúpínubreiðu bæjarins.

 


Menja von Schmalensee, Borgþór Magnússon, Ásrún Elmarsdóttir
og Magnús Jóhannsson virða fyrir sér spánarkerfil að vori.

 

 

Deila

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á

Gerast aðdáandi á facebook