
8. júní 2010
Kraftur í náttúrurannsóknum í Stykkishólmi í sumar
Um vor og sumar er aðaltíminn til gagnaöflunar í náttúrurannsóknum og þetta árið er mikið um að vera hjá Náttúrustofu Vesturlands og Háskólasetri Snæfellsness.
Á Náttúrustofu Vesturlands eru fjórir fastráðnir starfsmenn í fullu starfi, sem m.a. sinna rannsóknum á spendýrum, fuglum og plöntum og vinna að umhverfismálum, auk þess sem danskur sérfræðingur Norrænu eldfjallastöðvarinnar hefur þar starfsaðstöðu hluta af sínum vinnutíma. Í vor og sumar sinna þrír verkefnaráðnir starfmenn afmörkuðum verkefnum um mink, glókoll og tófu. Í sumar verður hér einnig doktorsnemi á styrk frá Rannís vegna minkarannsókna og líffræðinemi, sem fékk styrk til að vinna að rannsóknum á verkun þara á vegum Matís og Íslenskrar bláskeljar ehf. og hafa mun vinnuaðstöðu m.a. á Náttúrustofunni. Þá er ótalinn einn sjálfboðaliði sem verður hér við ýmsar rannsóknir í júlí.
Á Háskólasetri Snæfellsness eru tveir fastráðnir starfsmenn í fullu starfi, einkum við rannsóknir á æðarfugli og sjófuglum. Í sumar fjölgar verulega þegar hingað koma tveir doktorsnemar til rannsókna á kríu og æðarfugli ásamt 3-4 sjálfboðaliðum á þeirra vegum. Þá dvelja hér um hríð tveir erlendir sérfræðingar, bandarískur sérfræðingur í veirusjúkdómum í fuglum og kanadískur sjófuglasérfræðingur. Þrír sumarstarfsmenn verða við Háskólasetrið; tveir líffræðinemar úr Stykkishólmi vinna verkefni sín um lunda og kríu á styrkjum sem fengust hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Loks fengu Háskólasetrið og Vör Sjávarrannsóknasetur við Breiðafjörð styrk fyrir sumarmanneskju sem mun prófa veiðiaðferðir á marhnút, marflóm, sprettfiski og kræklingi, með það markmiði að geta vaktað þessar tegundir í framtíðinni.
Samkvæmt þessu verða a.m.k. 23 einstaklingar að störfum í tengslum við starfsemi Náttúrustofu Vesturlands og Háskólaseturs Snæfellsness þetta vor og sumar. Þá eru ótaldir starfsmenn Stykkishólmsbæjar og sjálfboðaliðar sem vinna munu að aðgerðum gegn ágengum plöntutegundum í sumar undir faglegri verkstjórn Náttúrustofunnar, auk innlendra og erlendra fræðimanna sem eiga hér leið um og nýta aðstöðu eða aðstoð starfsfólks stofnananna við rannsóknir sínar á svæðinu.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is
Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á
![]()