
23. júní 2010
Lúpínusláttur hafinn
Nú stendur yfir verkefni Stykkishólmsbæjar
og Náttúrustofu Vesturlands um aðgerðir
gegn ágengum plöntutegundum í landi sveitarfélagsins. Lúpínusláttur hófst í síðustu viku, en aðgerðir gegn lúpínu eru líklegastar
til að skila árangri þegar plantan er í fullum blóma. Almennt er ekki gert ráð fyrir að fjarlægja plönturnar eftir slátt, þar sem talið
er að plöntuleifarnar geti veitt vörn gegn því
að t.d. fíflar og njóli sái sér inn á slegnu
svæðin. Að auki mynda plöntuleifarnar lífrænt lag á yfirborði, sem dregur úr frostverkun og auðveldar framvindu annars gróðurs.
Í samstarfi við Landgræðslu ríkisins og Landbúnaðarháskóla Íslands verða gerðar tilraunir um árangur mismunandi aðgerða
gegn lúpínu. Í þeim tilgangi verða afmarkaðir nokkrir 5x20 m reitir í lúpínubreiðum
norðaustur af skógræktarsvæðinu við Grensás, þar sem borin verða saman áhrif sláttar, eitrunar og engra aðgerða. Útivistarfólk getur því átt von á að sjá þar merkta staura sem afmarka svæðin. Tilraunirnar munu auðvelda ákvarðanatöku um framhald aðgerða, bæði hér í Stykkishólmi og á landsvísu.
Síðastliðið mánudagskvöld tóku íbúar við Ytri-Höfða þátt í vel heppnuðu sameiginlegu lúpínusláttarkvöldi og í lok þessarar viku mun verkefninu berast liðsauki þegar hingað koma 8 sjálfboðaliðar frá SEEDS til tveggja vikna dvalar. Annar jafn stór hópur verður hér frá 9.-23. júlí.
Til gamans má geta þess að verkefnið hér í Stykkishólmi hefur nú þegar sett fordæmisgildi, því nú hefur bæjarstórn Ísafjarðarbæjar einnig ákveðið að fara í aðgerðir gegn lúpínu og kerflum, sbr. frétt í BB 21. júní.
Frekari upplýsingar um verkefnið og um ágengar tegundir almennt má finna í skýrslu Náttúrustofunnar um ágengar plöntur í Stykkishólmi, sem nálgast má á www.nsv.is/skyrslur.htm og í ráðhúsinu, en ábendingum eða athugasemdum við verkefnið má beina til starfsfólks Náttúrustofunnar.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is
Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á
![]()