Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

7. júlí 2010

Lúpínuslætti að ljúka

Aðgerðir gegn ágengum plöntum í Stykkishólmi ganga ágætlega og er lúpínuslætti að ljúka. Fyrstu yfirferð á skógarkerfil og spánarkerfil er lokið nema í örfáum tilfellum þar sem ekki fékkst leyfi til að fara inn í garða. Sömuleiðis vantar enn leyfi nokkurra garðeigenda til að fjarlægja
bjarnarkló og lúpínu.

Að kvöldi 21. júní síðastliðinn komu íbúar við Ytri-Höfða saman og slógu lúpínu. Þátttakan var góð og gekk slátturinn frábærlega í veðurblíðu.

Yfirbragð höfðans breyttist mikið við sláttinn. Eiga íbúarnir hrós skilið fyrir að eiga frumkvæði að aðgerðum sveitarfélagsins gegn ágengum plöntum og að leggja vinnu sína í aðgerðirnar.

Lúpínuslætti er nú lokið ef frá er talið skógræktarsvæðið við Grensás. Skógræktarfélag Stykkishólms er með ásana í austanverðu bæjarlandinu á leigu frá Stykkishólmsbæ. Samkomulag um að uppræta lúpínu þar tókst ekki að þessu sinni en verkefnið fær til umráða eina stóra breiðu á því svæði til að framkvæma samanburðartilraun á áhrifum eiturs og sláttar. Sá hluti breiðunnar sem ekki verður nýttur í tilraunina verður sleginn og er gert ráð fyrir að þeim slætti ljúki í vikunni. Að því loknu snýr hópurinn sér aftur að bjarnarkló og kerflum.

Þrír starfsmenn vinna í fullu starfi við aðgerðirnar en auk þeirra eru hér nú staddir fimm sjálfboðaliðar frá sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS www.seedsiceland.org.   

 

Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri

Bjössi málari vígalegur með orfið

Lúpína slegin í tilraunareit


Lúpína slegin í tilraunareit


Lúpínan þakti höfðann á stórum svæðum

Lúpínubreiðurnar eru stórar á tilraunasvæðinu

Lúpínutilraunareitir eru afmarkaðir með stikum og snæri  

Tilraunareitir stikaðir

Slegið af miklum móð

 

 

Deila

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á

Gerast aðdáandi á facebook