
8. júlí 2010
Branduglu hjúkrað til heilsu
Síðdegis á mánudaginn var Freydís Vigfúsdóttir, doktorsnemi við Háskólasetur Snæfellsness, ásamt fylgdarliði við athuganir í kríuvarpinu við Rif þegar hún sá kríurnar gera harða atlögu að einhverju. Í fyrstu sást lítið til meints afræningja í
varpinu en við nánari könnun sást að um branduglu var að ræða. Uglan var nær dauða en lífi eftir árásina en Freydís tók hana með sér á Náttúrustofuna til aðhlynningar.
Eftir hvíld og að hafa rifið í sig tvo hrossagauka sem fundust í frysti Náttúrustofunnar er uglan nú mun hressari. Henni verður sleppt aftur
við Rif þegar hún hefur náð fullum bata.
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að sjá þær stærri.
Uglan var enn mjög slappleg eftir fyrstu nóttina
Eftir að hafa fengið vatn og rifið í sig hræ tveggja
hrossagauka
hresstist uglan til muna
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is
Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á
![]()