Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

16. júlí 2010

Umhverfisvottun sveitarfélaga endurnýjuð

Eins og mörgum er kunnugt hlutu sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær, ásamt Snæfellsjökulsþjóðgarði, Green Globe umhverfisvottun samfélaga árið 2008. Var svæðið fyrsta samfélagið í Evrópu til þess að hljóta slíka vottun og það fjórða í heiminum.

Vottunarmálum er þannig háttað að fullkomnun er aldrei náð og því skiptir miklu máli að sífellt sé sýnt fram á betri árangur í umhverfismálum á svæðinu. Í maí síðastliðinn komu hingað þau Cathy Colgan, margreyndur úttektaraðili, og Haukur Haraldsson frá Almennu verkfræðistofunni, og mátu það hvort samfélögin á Snæfellsnesi stæðust kröfur um endurnýjaða vottun. Samkvæmt skýrslu þeirra til EarthCheck var mælt með því að vottun fengist á ný og þann 15. júlí síðastliðinn fengu sveitarfélögin tilkynningu um að umhverfisvottunin yrði endurnýjuð, nú undir merkjum EarthCheck. Sömu vottunarsamtökin standa að vottuninni og áður og hefur hún ekki breyst efnislega, aðeins nafnið.

Nú styttist í að nýir fánar með EarthCheck merkinu verði dregnir að húni til merkis um góða umhverfisvitund og vinnu að framförum í umhverfis- og samfélagsmálum.

Óska ég öllum íbúum Snæfellsness hjartanlega til hamingju með þennan merkilega áfanga um leið og ég hvet alla til þess að setja sér markmið um að gera örlítið betur á næstu mánuðum svo við getum fagnað á ný að ári.

Theódóra Matthíasdóttir, umhverfisfulltrúi Snæfellsness (theo@nsv.is)

 

Deila

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á

Gerast aðdáandi á facebook