
15. október 2010
Fyrsta ársskýrsla Samtaka náttúrustofa komin út
Út er komin ársskýrsla Samtaka náttúrustofa (SNS) fyrir árið 2009. Skýrslan inniheldur umfjöllun um starfsemi náttúrustofa, sem eru sjö talsins og
dreifðar um landið. Þetta er í fyrsta sinn sem SNS
gefur út sameiginlega ársskýrslu fyrir allar náttúrustofurnar en hún sýnir svo ekki er um að
villast að á náttúrustofunum er unnið mikilvægt, fjölbreytt og áhugavert starf í tengslum við
rannsóknir, fræðslu og ráðgjöf um náttúrutengd málefni.
Skýrslan, sem er um 60 síður að lengd, er
aðgengileg á netinu, bæði á heimasíðu Samtaka náttúrustofa www.sns.is og á heimasíðum einstakra náttúrustofa. Þeim sem vilja eignast prentað eintak
af skýrslunni er bent á að hafa samband við Samtök náttúrustofa eða næstu náttúrustofu.
Ársskýrslan í netupplausn
Ársskýrslan í prentupplausn
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is
Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á
![]()