Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

13. desember 2010

Skýrsla um gróðurfar í Húsafelli og Geitlandi

Út er komin skýrslan „Gróðurfarsúttekt á
Húsafellsskógi og Geitlandi 2010“,sem Björn Þorsteinsson og Anna Guðrún Þórhallsdóttir unnu
fyrir Náttúrustofu Vesturlands. Rannsóknin var unnin að beiðni Umhverfisstofnunar.

Mældur var þéttleiki og hæð birkis í friðlandinu í Húsafelli í Borgarfirði og þær niðurstöður bornar
saman við eldri rannsóknir (1981 og 2002). Ástand gróðurs í friðlandinu í Geitlandi, sem er skammt frá Húsafelli, var metið á tveimur völdum svæðum. Höfundar lýstu gróðurfari og settu fram ráðleggingar um landnotkun.

Rannsóknin var hluti af viðleitni Umhverfisstofnunar
til að bæta þekkingu og grundvöll stjórnunar á friðlýstum svæðum. Skýrsluna má nálgast á
Náttúrustofu Vesturlands eða með því að smella á
forsíðumyndina hér til hægri.


Deila

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á

Gerast aðdáandi á facebook