
12. september 2011
Umhverfisvottað Vesturland
Ráðstefna í Hjálmakletti, mennta- og menningarhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi
Fimmtudaginn 22. september standa Framkvæmdaráð Snæfellsness, Náttúrustofa Vesturlands og Borgarbyggð fyrir ráðstefnu
um umhverfismál og umhverfisvottanir.
Starfsemi sveitarfélaganna á Snæfellsnesi
er umhverfisvottuð samkvæmt staðli samtakanna EarthCheck. Í fyrrahaust var samþykkt ályktun á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um að skoða umhverfisvottun fyrir Vesturland allt með Snæfellsnes sem fyrirmynd. Tilgangur ráðstefnunnar er að fjalla um stöðu umhverfismála og kynna þessa hugmynd.
Bent verður á mikilvægi umhverfisverndar og hvað hægt sé að gera til þess að sporna
gegn þeirri neikvæðu þróun sem átt hefur
sér stað síðustu áratugi. Sérstaklega verður skoðað hversu stórt hlutverk sveitarfélög
leika þegar kemur að umhverfismálum.
Ráðstefnan stendur frá 11:00-16:30
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir – áhugasamir eru þó beðnir um að skrá sig á netfangið theo@nsv.is.
Smellið á myndina fyrir ofan til að sjá dagskrána.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is