
5. október 2011
Skýrsla um starfsemi Náttúrustofu Vesturlands komin út
Út er komin skýrsla um starfsemi Náttúrustofu Vesturlands á árunum 2007-2010. Skýrslan
er 32 síður og ríkulega myndskreytt. Eins og sjá má af skýrslunni var starfsemin fjölbreytt
á tímabilinu en eins og áður fór mest fyrir rannsóknum, fræðslu, ráðgjöf og ýmsum störfum í tengslum við umhverfismál.
Skýrslunni var fyrst dreift í afmælisfagnaði
Náttúrustofunnar síðastliðinn sunnudag en
á næstunni verður henni dreift til helstu samstarfsaðila. Að auki mun hún næstu
daga liggja frammi á Olísstöðinni (Bensó)
og í afgreiðslu ráðhússins í Stykkishólmi. Áhugasamir geta óskað eftir að fá sent eintak með því að senda póst á netfangið palmi@nsv.is eða hringt í s. 433 8121. Einnig
er bent á umhverfisvænni leið sem er að lesa hana með því að smella á myndina hér til hægri.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is
Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á
![]()