Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

11. október 2011

Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink


Pólverjinn Jakub Skorupski ásamt Róbert og Menju af Náttúrustofunni.


Nýverið sótti pólskur minkasérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að
afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka
á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn
Jakub Skorupski, sem starfar við
Tækniháskóla Vestur-Pommern í
Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt. Þekkinguna sem Jakub aflaði mun hann nýta til að stuðla að bættum aðgerðum gegn minkum í Póllandi.


Náttúrustofa Vesturlands var opinber gestgjafi og tengiliður í heimsókn hans til landsins. Starfsfólk stofunnar kynnti Jakub helstu niðurstöður íslenskra minkarannsókna og aðstoðaði hann einnig við skipulag ferðarinnar og að komast í samband við lykilaðila varðandi minkinn á Íslandi, þ.e. rannsóknafólk, fulltrúa stjórnsýslunnar, veiðimenn, minkabændur o.fl. Framhald verður á samstarfi Náttúrustofunnar og Jakub, því hann mun nýta minkasýni úr safni Náttúrustofunnar til að rannsaka erfðafræðilegan mun á minkastofnum. Tókst tveggja vikna kynningarferð Pólverjans með ágætum og hélt hann í síðustu viku alsæll heim á leið eftir árangursríka Íslandsheimsókn. Fjársýsluskrifstofa evrópska efnahagssvæðisins og Fjársýsluskrifstofa Noregs styrktu Íslandsför Jakub eftir sameiginlega umsókn hans og Náttúrustofunnar.

 

 

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu