
19. október 2011
Náttúrustofuþing 2011 í Neskaupstað
Náttúrustofuþing 2011 verður haldið í Neskaupstað miðvikudaginn 26. október næstkomandi. Þar gefst gestum tækifæri
til að hlýða á fjölbreytt erindi starfsmanna náttúrustofa og gestafyrirlesara.
Náttúrustofur eru sjö talsins, dreifðar vítt
og breitt um landið. Þær mynda með sér Samtök náttúrustofa, sem er samstarfs- og samráðsvettvangur þeirra. Frá árinu 2005
hafa náttúrustofurnar skipst á að halda ráðstefnu haust hvert í tengslum við
aðalfund samtakanna. Að þessu sinni er gestgjafinn Náttúrustofa Austurlands.
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast með því
að smella á myndina hér til hægri.
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is
Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á
![]()