Starfsemi
Fréttir
Heim

 

Náttúrustofan

 

Myndir

 

Fróðleikur

 

Tenglar

 

 

 

 

16. nóvember 2011

Náttúrustofa og Háskólasetur kynntu niðurstöður rannsókna á Líffræðiráðstefnunni 2011

Dagana 11. og 12. nóvember síðastliðinn hélt Líffræðifélag Íslands veglega ráðstefnu um íslenskar líffræðirannsóknir í Öskju og Íslenskri erfðagreiningu (http://lif.gresjan.is/2011/). Rannsóknir voru kynntar í 84 erindum og á 77 veggspjöldum. Náttúrurannsóknastofnanirnar
í Stykkishólmi, þ.e. Náttúrustofa Vesturlands og Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi (Háskólasetur Snæfellsness),
létu ekki sitt eftir liggja og kynntu hluta af rannsóknum sínum í fjórum erindum og á fimm veggspjöldum, m.a. um minka, refi, æður, glókoll, dílaskarf, lunda og fuglaskoðun. Hér
að neðan eru fyrirsagnir framlaga í stafrófsröð og ef smellt er á hlekkinn fyrir aftan þær
birtast útdrættir um hverja rannsókn fyrir sig og upplýsingar um höfunda. Einnig má skoða veggspjöldin í heild sinni.


Áhrif friðunar refs á ábúðarhlutfall refagrenja   Útdráttur   Veggspjald

Dílaskarfsstofninn 1998-2011   Útdráttur

Fuglaskoðun á Snæfellsnesi og í Dölum   Útdráttur   Veggspjald

Fæðuval æðarfugls í Breiðafirði   Útdráttur   Veggspjald

Tengsl loðnu og varps æðarfugls   Útdráttur

Útbreiðsla glókolls á Vesturlandi og áhrif veðurfars á stofnsveiflur   Útdráttur   Veggspjald

Varpvistfræði lunda á Breiðafirði   Útdráttur   Veggspjald

Veirusjúkdómur í mink: Útbreiðsla og áhrif á stofninn   Útdráttur

Æðarkollur skipta um hreiðurstæði eftir veðri, vindum og hver annarri   Útdráttur

 

 

 

 

Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is

 

Til baka á fréttasíðu