12 . apríl 2005
Snjógæs á Hvanneyri
Á sunnudag sást snjógæs ( Anser caerulescens ) innan um aðrar gæsir á Hvanneyri í Borgarfirði. Snjógæsir sjást árlega á Íslandi, oftast í fylgd blesgæsa ( Anser albifrons ), sem fara um Ísland vor og haust á milli vetrarstöðva á Írlandi og S kotlandi og varpstöðva á V-Grænlandi. Snjógæsin verpur í Alaska, á heimskautasvæðum Kanada og á NV-Grænlandi.
Mikill fjöldi blesgæsa hefur viðdvöl á Hvanneyri en þar hefur ákveðið svæði af þeim sökum verið verndað með svokallaðri búsvæðavernd.

Snjógæs ( Anser caerulescens )

Blesgæs ( Anser albifrons )