28. apríl 2005
Fuglafyrirlestur vel sóttur
Í gærkvöldi hélt Guðmundur A. Guðmundsson fyrirlestur á ráðhúsloftinu í Stykkishólmi um farfugla, þar sem hann fjallaði m.a. um hæfileika þeirra til rötunar. Margt athyglisvert kom fram í máli Guðmundar en meðal þess var að fuglar nota sólaráttavita, segulsvið jarðar, stjörnur, lykt, hljóð o.fl. til að rata á milli vetrar- og sumardvalarstaða sinna. Sumir þeirra ferðast þúsundir kílómetra á tiltölulega skömmum tíma tvisvar á ári. Fyrirlesturinn var vel sóttur og sköpuðust áhugaverðar umræður í kjölfarið.

Um 30 manns mættu á fyrirlestur um fugla, sem Náttúrustofa Vesturlands stóð fyrir í Stykkishólmi í gær.