28. maí 2005

Flaggað í Stykkishólmi

Í veðurblíðunni í Stykkishólmi í gærmorgun var dreginn að húni Benchmark fáni Green Globe 21 en honum var flaggað við Ráðhúsið.  Síðar sama dag var Bláfánanum flaggað þriðja árið í röð við Stykkishólmshöfn.

Green Globe 21 Benchmarked fáninn táknar að sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi hafa mætt viðmiðum Green Globe 21, sem er annað þrep af þremur í vottunarferlinu. Bláfáninn er alþjóðlegt merki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun hafs og stranda.

Bláfánann hljóta þeir einir sem leggja sig fram um að auka gæði og þjónustu stranda og smábátahafna og stuðla að verndun umhverfis.

Óli Jón dregur fánann að húni

Fulltrúar Stykkishólmsbæjar og Landverndar