29. nóvember 2004

Silkitoppuganga

Silkitoppa ( Bombycilla garrulus ) er árlegur vetrarflækingur á Íslandi. Í haust hefur þó borið óvenjulega mikið á þessum fallega fugli og hafa tilkynningar um einn eða fleiri fugla komið úr flestum landshlutum. Í sumum tilfellum hefur jafnvel verið um tugi fugla að ræða og hefur Yann Kolbeinsson, fuglaáhugamaður ( http://www.hi.is/~yannk/index-eng.html ), tekið þessar upplýsingar saman og áætlað að rúmlega 340 fuglar þessarar tegundar hafi sést á landinu í nóvember.          

Silkitoppurnar koma að austan, þar sem þær verpa í norðanverðu barrskógabeltinu. Mikil áraskipti eru í fjölda silkitoppu hér á landi en líkt og t.d. krossnefir, koma silkitoppur stundum til V-Evrópu  í stórum hópum en önnur ár er tegundin mun sjaldséðari. Þessi gerð fars hefur stundum verið nefnd rásfar og hefur helst verið talin skýrast af fæðuskorti á vetrarstöðvunum eða jafnvel offjölgun í stofni fuglanna, þótt frekari rannsóknir vanti til að staðfesta það.  

Silkitoppan er fallegur fugl á stærð við stara. Síðustu vikur hafa 1-3 slíkar sést í Grundarfirði, þar sem neðri myndin var tekin (Guðjón Elisson). Efri myndina tók Gaukur Hjartarson á Húsavík. Sjá má að Gaukur hafði sett epli á grein sem þær sóttu í en einnig er algengt að sjá silkitoppur tína ber, ef einhver eru enn eftir, af runnum og trjám . Náttúrustofa Vesturlands tekur gjarnan við upplýsingum um silkitoppur og aðra sjaldgæfa jafnt sem algengari fugla.