Þann 6. október sl. stóð Umhverfishópur Stykkishólms fyrir skoðunarferð á virkjanasvæði Múlavirkjunar á Snæfellsnesi. Á þriðja tug fullorðinna og myndarlegur barnahópur mætti í ferðina. Farið var að stöðvarhúsinu, stíflu efst í Straumfjarðará og að Hraunsfjarðarvatni. Áhugi fólks fyrir framkvæmdunum var mikill og sköpuðust líflegar umræður á staðnum. Meðfylgjandi eru fáeinar myndir úr ferðinni.
Hluti hópsins við Hraunsfjarðarvatn. Horn í baksýn.
Stíflan efst í Straumfjarðará.
Göngubrú hefur verið sett yfir Straumfjarðará að stöðvarhúsinu.
Hluti hópsins við stöðvarhúsið við Straumfjarðará í Dufgusdal.