
Ég vil gerast áskrifandi að fréttum NSV
Ef þú vilt gerast áskrifandi að fréttum frá Náttúrustofu Vesturlands skaltu skrá netfangið þitt hér að ofan. Ef þú óskar ekki lengur eftir því að vera í fréttaáskrift, smelltu hér.
27. ágúst 2010
Mánudaginn 23. ágúst fékk starfsfólk ráðhússins í Stykkishólmi ríflega tuttugu manna hóp tékkneskra sveitarstjórnarmanna í heimsókn. Heimsóknin var hluti af ferð hópsins um Vesturland í þeim tilgangi að
kynna sér vinnu sveitarfélaganna í fjórðungnum að umhverfismálum. Ferðin var að mestu leyti kostuð af Þróunarsjóði EFTA, en Environice átti stóran þátt í skipulagningunni hérlendis í samvinnu við Vaxtarsamning Vesturlands og ráðgjafastofuna MCN í Prag.
Tékkarnir dvöldu á Vesturlandi frá föstudegi til þriðjudags en héldu svo til síns heima eldsnemma á miðvikudagsmorgni. Í heimsókn sinni komu þeir við á ýmsum áhugaverðum stöðum á Vesturlandi eins og greint er frá í frétt á heimasíðu Environice.
Meira
16. júlí 2010
Umhverfisvottun sveitarfélaga endurnýjuð
Eins og mörgum er kunnugt hlutu sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær, ásamt Snæfellsjökulsþjóðgarði, Green Globe umhverfisvottun samfélaga árið 2008. Var svæðið fyrsta samfélagið í Evrópu til þess að hljóta slíka vottun og það fjórða í heiminum.
Vottunarmálum er þannig háttað að fullkomnun er aldrei náð og því skiptir miklu máli að sífellt sé sýnt fram á betri árangur í umhverfismálum á svæðinu. Í maí síðastliðinn komu hingað þau Cathy Colgan, margreyndur úttektaraðili, og Haukur Haraldsson frá Almennu verkfræðistofunni, og mátu það hvort samfélögin á Snæfellsnesi stæðust kröfur um endurnýjaða vottun. Samkvæmt skýrslu þeirra til EarthCheck var mælt með því að vottun fengist á ný og þann 15. júlí síðastliðinn fengu sveitarfélögin tilkynningu um að umhverfisvottunin yrði endurnýjuð, nú undir merkjum EarthCheck. Sömu vottunarsamtökin standa að vottuninni og áður og hefur hún ekki breyst efnislega, aðeins nafnið.
Meira
12. júlí 2010
Branduglunni, sem Freydís Vigfúsdóttir fann mikið slasaða eftir kríuárás fyrir tæpri viku, var sleppt í gær eftir aðhlynningu á Náttúrustofunni. Uglan var hin hressasta og frelsinu greinilega fegin. Hún flaug nokkra hringi um svæðið áður en hún hvarf sjónum.
8. júlí 2010
Síðdegis á mánudaginn var Freydís Vigfúsdóttir, doktorsnemi við Háskólasetur Snæfellsness, ásamt fylgdarliði við athuganir í kríuvarpinu
við Rif þegar hún sá kríurnar gera harða atlögu að einhverju. Í fyrstu
sást lítið til meints afræningja í
varpinu en við nánari könnun sást
að um branduglu var að ræða. Uglan var nær dauða en lífi eftir árásina en Freydís tók hana með sér á Náttúrustofuna til aðhlynningar.
Eftir hvíld og að hafa rifið í sig tvo hrossagauka sem fundust í frysti Náttúrustofunnar er uglan nú mun hressari. Henni verður sleppt aftur
við Rif þegar hún hefur náð fullum bata.
Meira
7. júlí 2010
Aðgerðir gegn ágengum plöntum í Stykkishólmi ganga ágætlega og er lúpínuslætti að ljúka. Fyrstu yfirferð á skógarkerfil og spánarkerfil er lokið nema í örfáum tilfellum þar sem ekki fékkst leyfi til að fara inn í garða. Sömuleiðis vantar enn leyfi nokkurra garðeigenda til að fjarlægja bjarnarkló og lúpínu.
Að kvöldi 21. júní síðastliðinn komu íbúar við Ytri-Höfða saman og slógu lúpínu. Þátttakan var góð og gekk slátturinn frábærlega í veðurblíðu. Yfirbragð höfðans breyttist mikið við sláttinn. Eiga íbúarnir hrós skilið fyrir að eiga frumkvæði að aðgerðum sveitarfélagsins gegn ágengum plöntum og að leggja vinnu sína í aðgerðirnar. Meira
5. júlí 2010
Tilraunalandið - Vísindin lifna við
Náttúrustofan vill vekja athygli á farandsýningu um náttúruvísindi sem verður í Stykkishólmi á morgun þann 6. júlí.
Smellið á auglýsinguna hér fyrir neðan til að sjá hana stærri.
23. júní 2010
Nú stendur yfir verkefni Stykkishólmsbæjar
og Náttúrustofu Vesturlands um aðgerðir
gegn ágengum plöntutegundum í landi sveitarfélagsins. Lúpínusláttur hófst í síðustu viku, en aðgerðir gegn lúpínu eru líklegastar
til að skila árangri þegar plantan er í fullum blóma. Almennt er ekki gert ráð fyrir að fjarlægja plönturnar eftir slátt, þar sem talið
er að plöntuleifarnar geti veitt vörn gegn því
að t.d. fíflar og njóli sái sér inn á slegnu
svæðin. Að auki mynda plöntuleifarnar lífrænt lag á yfirborði, sem dregur úr frostverkun og auðveldar framvindu annars gróðurs.
Í samstarfi við Landgræðslu ríkisins og Landbúnaðarháskóla Íslands verða gerðar tilraunir um árangur mismunandi aðgerða
gegn lúpínu. Í þeim tilgangi verða afmarkaðir nokkrir 5x20 m reitir í lúpínubreiðum
norðaustur af skógræktarsvæðinu við Grensás, þar sem borin verða saman áhrif sláttar, eitrunar og engra aðgerða. Útivistarfólk getur því átt von á að sjá þar merkta staura sem afmarka svæðin. Tilraunirnar munu auðvelda ákvarðanatöku um framhald aðgerða, bæði hér í Stykkishólmi og á landsvísu.
Meira
14. júní 2010
Á vegum Stykkishólmsbæjar eru nú hafnar aðgerðir gegn ágengu plöntunum skógarkerfli og spánarkerfli. Kerflarnir, sem gjarnan mynda með tímanum samfelldar
breiður sækja í næringarríkan jarðveg, þar á meðal lúpínubreiður, og dreifa
sér ört á eigin spýtur. Þeir eru taldir ógn við líffræðilega fjölbreytni því fáar aðrar plöntur þrífast í skugga þeirra. Aðgerðir gegn þeim eru dýrari og erfiðari eftir því sem plönturnar eru útbreiddari, auk þess sem tap á náttúrulegu gróðurfari verður meira. Stykkishólmsbær er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að hefja slíkar aðgerðir í heilu sveitarfélagi.
Tveir menn vinna nú í fullu starfi við aðgerðir gegn ágengum plöntum í Stykkishólmi og hafa þegar þetta er ritað slegið eða stungið upp kerflana alls staðar utan garða og í görðum þar sem samþykki eiganda hefur fengist. Eigendur garða þar sem enn er að finna kerfil eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hlyn í s. 864-5547 eða undirritaðan.
Meira
8. júní 2010
Kraftur í náttúrurannsóknum í Stykkishólmi í sumar
Um vor og sumar er aðaltíminn til gagnaöflunar í náttúrurannsóknum og þetta árið er mikið um að vera hjá Náttúrustofu Vesturlands og Háskólasetri Snæfellsness.
Á Náttúrustofu Vesturlands eru fjórir fastráðnir starfsmenn í fullu starfi, sem m.a. sinna rannsóknum á spendýrum, fuglum og plöntum og vinna að umhverfismálum, auk þess sem danskur sérfræðingur Norrænu eldfjallastöðvarinnar hefur þar starfsaðstöðu hluta af sínum vinnutíma. Í vor og sumar sinna þrír verkefnaráðnir starfmenn afmörkuðum verkefnum um mink, glókoll og tófu. Í sumar verður hér einnig doktorsnemi á styrk frá Rannís vegna minkarannsókna og líffræðinemi, sem fékk styrk til að vinna að rannsóknum á verkun þara á vegum Matís og Íslenskrar bláskeljar ehf. og hafa mun vinnuaðstöðu m.a. á Náttúrustofunni. Þá er ótalinn einn sjálfboðaliði sem verður hér við ýmsar rannsóknir í júlí.
Meira
1. júní 2010
Teymi sérfræðinga kemur að aðgerðum gegn ágengum plöntum
Náttúrustofa Vesturlands hefur fengið helstu sérfræðinga landsins um landgræðslu og ágengar plöntur til liðs við sig í samstarfsverkefni sínu við Stykkishólmsbæ um aðgerðir gegn ágengum plöntum í bæjarlandinu.
Þann 20. maí síðastliðinn stóð Náttúrustofan fyrir sérfræðingafundi í Stykkishólmi þar sem 7 sérfræðingar
frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Landgræðslu ríkisins, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands vörðu einum degi til að skoða aðstæður og veita ráðgjöf.
Allar þessar stofnanir munu leggja verkefninu lið með áframhaldandi ráðgjöf en einnig munu Landgræðslan og Landbúnaðarháskólinn taka þátt í að mæla árangur mismunandi aðferða, Náttúrufræðistofnun mun leggja til greiningu á loftmyndum og Háskólinn mun standa fyrir rannsóknum á félagslegum þáttum.
Meira
26. apríl 2010
Jón Sólmundsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnuninni, áður útibússtjóri stofnunarinnar í Ólafsvík, flytur erindi um skötusel
og lifnaðarhætti hans næstkomandi þriðjudag.
Sjómenn við sunnanverðan Breiðafjörð hafa í
síauknum mæli orðið varir við skötusel á síðustu
árum, enda er tegundin ein þeirra sem breytt hafa
útbreiðslu sinni á Íslandsmiðum á síðustu árum.
Fyrirlesturinn, sem er á vegum Náttúrustofu Vesturlands og Háskólaseturs Snæfellsness, verður þriðjudaginn 27. apríl kl. 20 á ráðhúsloftinu,
Hafnargötu 3 í Stykkishólmi.
Meira
Vel heppnuð ráðstefna um umhverfismál og vottun Vestfjarða
Um síðustu helgi héldu Ferðamálasamtök Vestfjarða ráðstefnu að Núpi við Dýrafjörð til að vekja athygli á mikilvægi umhverfismála og umhverfisvottana. Fyrirlesarar voru umhverfisráðherra, sérfræðingar um umhverfismál, þ.á m. tveir fulltrúar Náttúrustofu Vesturlands, auk fulltrúa fyrirtækja og sveitarfélaga.
Ráðstefnan var mjög vel heppnuð og gestir nálægt 100.
„Ég hef á tilfinningunni að ráðstefnan hafi þegar gert það gagn að nú verði ekki aftur snúið í þessum málum og ég er mjög bjartsýnn á að Vestfirðingar séu tilbúnir að ræða þessi mál af alvöru og hrinda þeim í framkvæmd,“ sagði Sigurður Atlason, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða, um ráðstefnuna í viðtali við BB (sjá http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=147286).
Ráðstefnuhefti með útdráttum erinda má finna hér eða með því að smella á myndina fyrir ofan.
Meira
12. apríl 2010
Umhverfismál og vottun Vestfjarða
Laugardaginn 17. apríl standa Ferðamálasamtök Vestfjarða fyrir afar áhugaverðri ráðstefnu í Dýrafirði. Ráðstefnan ber yfirskriftina „Umhverfisvottun Vestfjarða“ en þar munu sérfræðingar víða að fjalla um ýmislegt er snýr að umhverfismálum. Á meðal fyrirlesara eru þrír Snæfellingar, þar af tveir starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands. Róbert A. Stefánsson mun fjalla um umhverfisvottun Snæfellsness, hvað hún felur í sér og hverju hún hefur skilað en Menja von Schmalensee fjallar um framtíðarsýn um umhverfisvottað Ísland. Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi, mun fjalla um reynslu Stykkishólmsbæjar af frumkvöðlastarfi á sviði umhverfismála.
Ráðstefnan verður haldin á Hótel Núpi í Dýrafirði og hefst kl. 11, laugardaginn 17. apríl. Allir eru velkomnir. Meira
22. mars 2010
Fyrirlestur SNS í fjarfundabúnaði: Uppeldisstöðvar þorskseiða
Fimmtudaginn 25. mars, kl. 12:15 - 12:45, flytur Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, líffræðingur á Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum, erindi sitt:
Uppeldisstöðvar þorskseiða.
Í Stykkishólmi er hægt að fylgjast með erindinu í Egilshúsi og á Hvanneyri í Landbúnaðarháskólanum (Vesturstofu í Ásgarði).
Nánar má lesa um fræðsluerindi Náttúrustofa og á hvaða stöðum hægt er að fylgjast með þeim með því að smella á auglýsinguna hér fyrir neðan.
22. mars 2010
Umsóknarfrestur rennur út í dag
Minnt er á að umsóknarfrestur um starf umhverfisfulltrúa Snæfellsness er að renna út. Í einni af þeim auglýsingum sem birtust fyrir nokkru misritaðist umsóknarfrestur en hið rétta er að hann rennur út í dag, mánudaginn 22.
mars. Auglýsinguna í heild sinni má finna hér.
12. mars 2010
Úrslitatilraun til að bjarga erni
Í fyrrakvöld sagði Stöð 2 frá skurðaðgerð sem framkvæmd var á haferni á dýraspítalanum í Víðidal. Örninn hefur verið í umsjá Húsdýragarðsins og Náttúrufræðistofnunar undanfarna mánuði.
Fuglinn var merkur sem ungi á hreiðri á Mýrum sumarið 2004 en heimilisfólkið í Bjarnarhöfn á norðanverðu Snæfellsnesi fann hann laskaðan við Bjarnarhafnarfjall undir lok september í fyrra. Starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands sóttu fuglinn og komu honum í hendur Kristins Hauks Skarphéðinssonar, arnarsérfræðings Náttúrufræðistofnunar Íslands. Farið var með fuglinn í skoðun á dýraspítalann í Víðidal þar sem í ljós kom vökvafyllt kýli við vænglið, sem var tæmt og hreinsað. Undanfarna rúma fimm mánuði hefur örninn svo dvalið í Húsdýragarðinum án þess að sýna umtalsverðar framfarir. Því var ákveðið að láta dýralækni gera úrslitatilraun til að hjálpa erninum. Liðurinn var enn bólginn og við röntgenmyndun kom í ljós það sem virtist vera aðskotahlutur í liðnum. Skorið var á kýlið og liðurinn hreinsaður.
Meira
9. mars 2010
Fyrirlestur: Landgræðsla – leiðindi eða líkn við landið?
Kristín Svavarsdóttir, plöntuvistfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins, fjallar um gróðurframvindu og stýringu á henni við uppgræðslu lands.
Á síðari árum hefur áhersla á vistheimt orðið æ stærri þáttur í landgræðslu bæði hér á landi og alþjóðlega. Vistheimt og framvinda eru nátengd. Með framvindu er átt við stefnubundna breytingu á tegundum og undirlagi yfir tíma óháð árstíð en vistheimt er einmitt markviss stýring á slíkri breytingu. Í fyrirlestrinum verður fjallað um efnið og niðurstöður rannsókna Kristínar og samstarfsfólks fléttaðar inn.
Fyrirlesturinn, sem er á vegum Náttúrustofu Vesturlands, Umhverfishóps Stykkishólms og Háskólaseturs Snæfellsness, verður fimmtudaginn 11. mars kl. 20 á ráðhúsloftinu, Hafnargötu 3 í Stykkishólmi.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.

Smellið á myndina til að sjá hana stærri
5. mars 2010
Augýst eftir umhverfisfulltrúa

Náttúrustofa Vesturlands í Stykkishólmi auglýsir eftir umhverfisfulltrúa til að sinna umhverfismálum sveitarfélaganna fimm á Snæfellsnesi. Um er að ræða 100% stöðu, sem felur í sér vinnu að og umsjón með sjálfbærnivottun Snæfellsness (sjá www.nesvottun.is og www.earthcheck.org). Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf sem getur falið í sér tækifæri til að hafa víðtæk áhrif á sviði umhverfismála.
Leitað er eftir kraftmiklum, drífandi, jákvæðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn áhuga á umhverfismálum, sem hefur góða samskiptahæfni og getur unnið sjálfstætt.
Umsækjandi þarf að hafa lokið háskólanámi í umhverfisfræði eða náttúrufræði. Framhaldsmenntun á háskólastigi er æskileg. Færni í að miðla upplýsingum á rituðu og töluðu máli og góð enskukunnátta er nauðsynleg.
Meira
22. febrúar 2010
Fyrirlestur SNS í fjarfundabúnaði: Hnyðlingar í íslenskum gosmyndunum
Fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 12:15 - 12:45, flytur Ingvar Atli Sigurðsson, jarðfræðingur á Náttúrustofu Suðurlands, erindi sitt:
Hnyðlingar í íslenskum gosmyndunum.
Í Stykkishólmi er hægt að fylgjast með erindinu í Egilshúsi og á Hvanneyri í Landbúnaðarháskólanum (Vesturstofu í Ásgarði).
Nánar má lesa um fræðsluerindi Náttúrustofa og á hvaða stöðum hægt er að fylgjast með þeim með því að smella á auglýsinguna hér fyrir neðan.
19. febrúar 2010
Lísa Anne Libungan, sjávarlíffræðingur frá Háskóla Íslands og Matís, heldur fyrirlestur um nýlegar rannsóknir sínar á aðlögun þorsks að umhverfi sínu.
Þorskurinn við Ísland býr við breytileg umhverfisskilyrði sem einkennast af áhrifum kaldsjávar norður af landinu en hlýrri sjávar við suðurströndina. Munur er á vexti, lifun og súrefnisupptöku þorsks frá norður- og suðursvæði, sem gefur til kynna að stofngerð þorsks við Ísland sé flóknari en margan grunar.
Fyrirlesturinn, sem er á vegum Háskólaseturs Snæfellsness og Náttúrustofu Vesturlands, verður þriðjudaginn 23. febrúar kl. 20 á ráðhúsloftinu, Hafnargötu 3 í Stykkishólmi.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis

Smellið á myndina til að sjá hana stærri
25. janúar 2010
Fræðsluerindi náttúrustofa í fjarfundarbúnaði: Æðarfugl - Gerð og samsetning ungahópa
Fimmtudaginn 28. janúar nk. kl 12:15-12:45 flytur Rán Þórarinsdóttir, líffræðingur á Náttúrustofu Austurlands, erindi sitt um gerð og samsetningu æðarfuglaungahópa. Erindinu verður varpað vítt og breitt um landið. Í Stykkishólmi er hægt að fylgjast með erindinu í námsverinu í Egilshúsi og á Hvanneyri í Landbúnaðarháskólanum (Vesturstofu í Ásgarði). Allir velkomnir.
19. janúar 2010
Miðvikudaginn 20. janúar kl. 20 mun Freydís Vigfúsdóttir, líffræðingur á Háskólasetri Snæfellsness, fjalla um
kríur á Snæfellsnesi í fyrirlestri á lofti ráðhússins í Stykkishólmi.
Frá 2005 hefur varpárangur hjá mörgum sjófuglategundum verið áberandi lélegur. Krían er sérstaklega viðkvæm fyrir umhverfisbreytingum en verkefni
Freydísar er að meta áhrif breytilegs umhverfis á kríur. Undanfarin tvö ár hefur hún stundað rannsóknir í snæfellskum kríuvörpum og mun í fyrirlestrinum greina frá helstu niðurstöðum rannsóknarinnar sem fyrir liggja.
Smellið á meðfylgjandi mynd til að skoða auglýsingu um atburðinn. Meira
8. janúar 2010
Nú er lokið árlegri talningu vetrarfugla sem fer fram í kringum áramót. Að þessu sinni voru fuglar taldir mun víðar á Snæfellsnesi en áður (sjá meðfylgjandi kort).
Á talningarsvæðunum voru samtals um 20 þúsund fuglar af 33 tegundum. Fuglalífið var óvenju blómlegt líkt og síðasta vetur, að líkindum vegna mikillar síldargengdar í Breiðafirði annan veturinn í röð. Algengasti fuglinn var æðarfugl en þar á eftir komu hvítmáfur og svartbakur. Í töflu hér fyrir neðan má sjá
10 algengustu fuglategundirnar. Meira
21. desember 2009
Jólakveðja frá Náttúrustofu Vesturlands
Starfsfólk Náttúrustofu Vesturlands óskar samstarfsfólki, viðskiptavinum, velunnurum, Vestlendingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Vinsamlegast smellið á meðfylgjandi mynd.
14. desember 2009
Vel heppnaðar loftslagskertavökur um allan heim
Áætlað er að mörg hundruð þúsund manns hafi mætt á meira en 3.200 loftslagskertavökur í 139 löndum, sem haldnar voru síðastliðinn laugardag, 12. desember, til að hvetja ráðamenn heimsins, sem funda á loftslags-ráðstefnunni í Kaupmannahöfn, til að gera sanngjarnan, metnaðarfullan og bindandi samning um losun gróðurhúsalofttegunda. Meira en 11 milljónir jarðarbúa hafa skrifað undir yfirlýsingu um að vera tilbúinir fyrir raunverulegar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum (sjá www.tcktcktck.org). Í gær, 13. desember hringdu kirkjuklukkur um allan heim, þ.á.m. í Stykkishólmi, 350 sinnum til að vekja athygli á því að styrkur koltvíoxíðs í andrúmslofti er ekki talinn mega vera hærri en 350 hlutar úr milljón til að athafnir manna hafi ekki alvarleg áhrif á loftslag jarðar. Styrkurinn er nú um 390 og fer ört hækkandi.
Á Íslandi voru skráðar kertasamkomur í Stykkishólmi, Borgarnesi og Reykjavík. Samkomunni í Reykjavík var frestað til þriðjudags vegna veðurs en Vestlendingar létu rigningu og rok ekki aftra sér. Hólmarar voru með fjölmennustu kertavöku landsins, þar sem 25 manns mættu og áttu góða stund saman. Meira
9. desember 2009
Metþátttaka í alþjóðlegri loftlagsvöku?
Laugardaginn 12. desember kl. 17 standa Umhverfishópur Stykkishólms og Náttúrustofa Vesturlands fyrir samverustund í Hólmgarði, Stykkishólmi, til að hvetja leiðtoga heimsins á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn til að gera sanngjarnan, metnaðarfullan og bindandi samning um aðgerðir til að draga úr loftslagsbreytingum af mannavöldum.
Uppákoman er hluti af alþjóðlegum viðburði sem umhverfis- og mannréttindasamtök o.fl. undir regnhlífinni TckTckTck standa fyrir í öllum heimshornum þennan dag. Vonir standa til að viðburðurinn verði einn sá allra stærsti til þessa um loftslagsmál, en þegar þetta er ritað eru 2.227 samkomur í 132 löndum þegar komnar á skrá og eiga þessar tölur eflaust eftir að hækka. Á Íslandi eru skráðar samkomur í Stykkishólmi, Borgarnesi og Reykjavík.
Meira
4. desember 2009
Í nóvember kynnti Náttúrustofa Vesturlands tillögu sína um að umhverfisvotta Ísland. Hugmyndin hefur vakið nokkra athygli og jákvæða umfjöllun í öllum helstu fjölmiðlum landsins.
Greinargerðin um umhverfisvottun Íslands var send til allra þingmanna og auk þess valinna aðila víða um land. Á næstu dögum verður hún send til forsvarsmanna sveitarfélaga um land allt.
Í höfuðstöðvum Green Globe í Ástralíu hefur hugmyndin einnig vakið athygli og fengið jákvæðar undirtektir. Hafa forsvarsmenn þeirra m.a. sýnt því áhuga að ræða við íslenska ráðamenn um útfærslur hugmyndarinnar. Meira
4. desember 2009
Metnaðarfullan, bindandi og sanngjarnan samning í Kaupmannahöfn
Laugardaginn 12. desember kl. 17 standa Umhverfishópur Stykkishólms og Náttúrustofa Vesturlands fyrir samverustund í Hólmgarði, Stykkishólmi, til að vekja athygli á mikilvægi Kaupmannahafnarfundarins, ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, sem fram fer dagana 7.-18. desember. Í boði verður heitur jóladrykkur og piparkökur í húsi kvenfélagsins. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér kerti og/eða kyndla og góða skapið. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Uppákoman er hluti af alþjóðlegum viðburði sem umhverfis- og mannréttindasamtök o.fl. undir regnhlífinni TckTckTck standa fyrir í öllum heimshornum þennan dag.
(sjá http://tcktcktck.org/realdeal).
Vonir standa til að viðburðurinn verði einn sá allra stærsti til þessa um loftslagsmál, en um 1.000 samkomur eru þegar komnar á skrá í
90 löndum og mun eflaust fjölga til muna
þegar nær dregur. Meira
24. nóvember 2009
Glókollur – örsmár konungur fuglanna
Róbert A. Stefánsson og Menja von Schmalensee, Náttúrustofu Vesturlands,
halda fyrirlestur á vegum Náttúrustofunnar og Umhverfishóps Stykkishólms á ráðhúsloftinu, fimmtudaginn 26. nóvember kl. 20.
Glókollur er einn af nýlegum landnemum á Íslandi. Hann er minnsti varpfugl í Evrópu, staðfugl, étur skordýr og heldur til í barrskógum. Náttúrustofa Vesturlands hefur fylgst með útbreiðslu glókollsins á Vesturlandi frá árinu 2003. Fjallað verður almennt um glókollinn og lifnaðarhætti hans, hvernig útbreiðsla hans hefur þróast og hvers vegna hann er nefndur fuglakóngur í Skandinavíu.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis
Smellið á myndina til að sjá hana í hærri upplausn
24. nóvember 2009
Á vísindavöku, sem haldin var af hópnum W23 þann 14. nóvember síðastliðinn í Félagsheimilinu Klifi, var gestum boðið að taka þátt í getraun. Verðlaun voru tvö eintök af bókinni Ströndin í náttúru Íslands, árituð af höfundi, Guðmundi Páli Ólafssyni. Dregið var úr réttum svörum og upp komu nöfn tveggja 8 ára barna, þeirra Jönu Hermannsdóttur og Gylfa Örvarssonar. Myndin var tekin við afhendingu verðlaunanna. Aðstandendur vísindavökunnar óska þeim til hamingju með vinningana og þakka þeim og öðrum fyrir þátttökuna.
W23 er samstarf fimm náttúrutengdra stofnana á Snæfellsnesi sem efla vilja náttúruvísindi: Háskólaseturs Snæfellsness, Náttúrustofu Vesturlands, útibús Hafrannsóknastofnunarinnar í Ólafsvík, Varar, sjávarrannsóknarseturs við Breiðafjörð og Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls. Samstarfið er styrkt af Vaxtarsamningi Vesturlands.

Gylfi Örvarsson og Jana Hermannsdóttir við afhendingu verðlaunanna.
(Myndina tók Erla Björk Örnólfsdóttir)
23. nóvember 2009
Fyrirlestur SNS í fjarfundabúnaði: Fuglalíf á votlendissvæðum Skagafjarðar
Fimmtudaginn 26. nóvember, kl. 12:15 - 12:45, flytur Þórdís Vilhelmína Bragadóttir,líffræðingur á Náttúrustofu Norðurlands vestra, erindi sitt:
Fuglalíf á votlendissvæðum Skagafjarðar
Í Stykkishólmi er hægt að fylgjast með erindinu í Egilshúsi og á Hvanneyri í Landbúnaðarháskólanum (Vesturstofu í Ásgarði).
Nánar má lesa um fræðsluerindi Náttúrustofa og á hvaða stöðum hægt er að fylgjast með þeim með því að smella á auglýsinguna hér fyrir neðan.
12. nóvember 2009
Hólmarar á Líffræðiráðstefnunni 2009
Hluti af rannsóknum Háskólaseturs Snæfellsness (HS) og Náttúrustofu Vesturlands (NSV) var kynntur á stórri ráðstefnu um líffræðirannsóknir á Íslandi, sem haldin var í Reykjavík 6.-7. nóvember í tilefni af 30 ára afmæli Líffræðifélags Íslands og 35 ára afmæli Líffræðistofnunar Háskólans. Ráðstefnan var feykivel sótt en þar voru fjölbreyttar rannsóknir kynntar í 105 erindum og á 110 veggspjöldum. Meira
11. nóvember 2009
Verður Ísland fyrsta umhverfisvottaða land heims?

Í nýrri greinargerð Náttúrustofu Vesturlands er fjallað um þann möguleika að umhverfisvotta Ísland. Með henni er athygli vakin á nýstárlegri og raunhæfri leið til að byggja upp ímynd landsins og styrkja á sama tíma ferðaþjónustu, útflutningsgreinar og sjálfbæra þróun.
Ísland yrði fyrsta umhverfisvottaða landið í heiminum, sem markaði því sérstöðu sem á sér engin fordæmi.
Greinargerðina í heild sinni má nálgast með því að smella á myndina hér til hægri.
10. nóvember 2009
Laugardaginn 14. nóvember býður W23-hópurinn til Vísindavöku í Ólafsvík kl. 13:00-15:30. Margt áhugavert verður á boðstólum og eru allir velkomnir. Nánari upplýsingar má sjá með því að smella á meðfylgjandi auglýsingu.
W23 er heiti samstarfs náttúrutengdra stofnana á Snæfellsnesi. Stofnanirnar eru Náttúrustofa Vesturlands, Háskólasetur Snæfellsness, Vör Sjávarrannsóknarsetur, útibú Hafrannsóknastofnunarinnar í Ólafsvík og Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull.
Smellið á myndina hér fyrir neðan fyrir nánari upplýsingar.
28. október 2009
Fræðsluerindi náttúrustofa hefjast á ný:
Fiðrildi fylla Jökulsárgljúfur
21. október 2009
Ágengar plöntur í Stykkishólmi
Náttúrustofa Vesturlands hefur gefið út skýrsluna „Ágengar plöntur í Stykkishólmi – útbreiðsla alaskalúpínu, skógarkerfils, spánarkerfils og bjarnarklóar og tillögur um mótvægisaðgerðir“. Skýrslan er unnin að frumkvæði Stykkishólmsbæjar en varð að samvinnuverkefni bæjarins og Náttúrustofunnar.
Ljóst er að ágengar tegundir geta haft veruleg neikvæð áhrif á líffræðilega fjölbreytni. Áætlað er að á heimsvísu megi nú finna a.m.k. 100-550 þúsund tegundir plantna og dýra sem lifa utan náttúrulegra heimkynna sinna og er talið að allt að 80% tegunda á alþjóðlegum válistum séu þar vegna neikvæðra áhrifa innfluttra tegunda. Meira
1. október 2009
Náttúrustofuþing 2009 í Sandgerði
1. október 2009
Laskaður örn undir læknishendur
26. ágúst 2009
Stjórnun strandsvæða
24. ágúst 2009
Nýr starfsmaður á Náttúrustofunni
6. júlí 2009
Litfögur fiðrildi
25. júní 2009
Erni sleppt í gær
23. júní 2009
Fjölbreytt og skemmtilegt skrifstofustarf
23. júní 2009
Örn endurheimtist í Skessuhorninu
16. júní 2009
Grútarblautur örn
3. júní 2009
Vogmey rak á fjöru í Stykkishólmi
2. júní 2009
Vísindamenn framtíðar aðstoðuðu við rjúpnatalningu
29. apríl 2009
Kynning á Eldfjallasafni í Stykkishólmi
27. apríl 2009
Fræðsluerindi í fjarfundarbúnaði: Athuganir á Dýra- og Önundarfirði fyrir og eftir þverun
14. apríl 2009
Kynning á nýrri gönguleið eftir Snæfellsnesfjallgarði
26. mars 2009
Fyrirlestur - Milli lands og Eyja
26. mars 2009
Fræðsluerindi í fjarfundarbúnaði: Glókollur á Vesturlandi
17. mars 2009
Hellar eru auðlind - fræðslufundur
23. febrúar 2009
Fræðsluerindi í fjarfundarbúnaði: Áhrif bogkrabba og nákuðungs á hrúðurkarl og krækling í fjörum
17. febrúar 2009
Fyrirlestur um pokadýr í Ástralíu
3. febrúar 2009
Doktorsnemum fjölgar á Náttúrustofunni
28. janúar 2009
Fræðsluerindi í fjarfundarbúnaði
21. janúar 2009
Fyrirlestur um brandendur
7. janúar 2009
Metfjöldi fugla í vetrarfuglatalningu NSV
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is
Aðdáendasíða
Náttúrustofunnar á